Komin í úrvalsdeildina 13. febrúar 2005 00:01 "
Þetta er gríðarmikil viðurkenning. Þessi verðlaun koma eiginlega strax á eftir Óskarnum í umfangi og stærð," segir Ásgrímur Sverrison kvikmyndagerðarmaður um sigur Valdísar Óskarsdóttur á Bafta-verðlaunahátíðinni í Bretlandi í fyrrakvöld. Valdís fékk þar verðlaun fyrst Íslendinga fyrir að klippa myndina Eternal Sunshine of the Spotless Mind með Jim Carrey og Kate Winslet í aðalhlutverkum. Sigraði hún þar fræga klippara á borð við Thelmu Schoonmaker, sem vann að stórmynd Martin Scorsese, The Aviator. Thelma hefur einmitt verið tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í ár, eins og klipparar myndarinnar Collateral sem einnig töpuðu fyrir Valdísi í fyrrakvöld. "Þessi verðlaun eru forleikur að Óskarnum og hafa í gegnum árin gefið sterkar vísbendingar um sigurvegarana þar. En af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er Valdís ekki tilnefnd til Óskarsverðlaunanna. Sigurinn hjá Bafta sannar hversu undarlegt var að tilnefna hana ekki til þeirra verðlauna," segir Ásgrímur. Ásgrímur segir að Thelma hafi alla tíð verið í miklu uppáhaldi hjá Valdísi enda hefur hún klippt nánast allar myndir Martins Scorsese. Á meðal þeirra eru Goodfellas, Casino, Gangs of New York og Raging Bull, sem hún vann Óskarinn fyrir árið 1980. "Hún er klippari númer eitt í dag enda raðar Scorsese bara í kringum sig toppfólki. Ég hef heyrt Valdísi hlaða hana lofi og prísi," segir Ásgrímur, sem segist ekki vita hvort Bafta-verðlaunin eigi eftir að breyta ferli Valdísar. "Þetta sýnir alla vega og sannar að hún er komin í úrvalsdeildina í heiminum eins og hún hefur verið í dálítið mörg ár. Þessi verðlaun eru staðfesting á því." Ásgrímur vann lítillega með Valdísi fyrir mörgum árum þegar hann aðstoðaði hana við klippingu á Sódómu Reykjavík. "Það var sérlega ljúft. Hún er alveg frábær manneskja. Ég kunni afskaplega vel við hana og hún er yfirveguð og æðrulaus. Það er hennar stærsta "talent." Hún hefur góða heildaryfirsýn eins og allir góðir klipparar þurfa að hafa." Þess má geta að leikstjóri Eternal Sunshine of the Spotless Mind er Michel Gondry sem áður hefur leikstýrt mörgum myndböndum Bjarkar Guðmundsdóttur, þar á meðal Human Behavior, Army of Me og Hyperballad. Kann hann því greinilega vel að starfa með íslenskum kjarnakonum.
Menning Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira