Bowles verður ekki drottning 10. febrúar 2005 00:01
Camilla Parker Bowles verður ekki prinsessa af Wales þegar hún giftist Karli Bretaprinsi hinn 8. apríl næstkomandi. Og hún verður heldur ekki drottning þótt hann verði konungur. Þótt meirihluti bresku þjóðarinnar virðist hafa sætt sig við að Karl kvænist Camillu Parker Bowles er augljóst að konungsfjölskyldan leggur mikla áherslu á að sýna fram á að henni er ekki ætlað að taka við hlutverki Díönu, prinsessu af Wales. Þau Karl munu til dæmis ekki gifta sig í Sankti Páls dómkirkjunni heldur hjá borgarfógeta. Camilla Parker Bowles er stóra ástin í lífi Karls Bretaprins. Þau hittust fyrst á pólóleik árið 1971 þegar hann var 22 ára og hún 23. Þau áttu í heitu ástarsambandi í tvö ár en svo fór að hún giftist foringja í hernum, Andrew Parker Bowles, og eignaðist með honum tvö börn. Karl kvæntist aftur Díönu Spencer og eignaðist með henni tvo syni. Bæði skildu eins og frægt er orðið. En nú eru þau loks að ná saman og þjóðin virðist nokkuð sátt, alla vega ríkisstjórnin. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist samgleðjast Karli og Camillu. Þetta væru gleðitíðindi og þegar ríkisstjórnin hefði heyrt af fyrirhugaðri giftingu hefði hún sent þeim hamingjuóskir og kveðjur fyrir hönd stjórnvalda. Meðal titla Karls er prins af Wales og því liggur beint við að eiginkona hans sé prinsessan af Wales. Camilla verður hins vegar hennar konunglega hátign hertogaynjan af Cornwall, sem er annar titill sem Karl ber, en sýnu lægri. Þá fær hún ekki titilinn drottning þegar Karl tekur við konungdómi heldur verður hún kölluð „Princess Consor“ sem þýðir eiginlega bara eiginkona konungs.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Sjá meira