Sekt eða sakleysi aukaatriði 1. febrúar 2005 00:01
Sekt og sakleysi virðast algjör aukaatriði við réttarhöldin yfir Michael Jackson, en verið er að velja kviðdóm til að fjalla um ásakanir um barnaníðingsskap á hendur honum. Ástandið fyrir utan dómhúsið í Santa Barbara sýslu, þar sem poppgoðið Michael Jackson svarar til saka fyrir níðingsskap gagnvart ungum dreng, er eins og í fjölleikahúsi. Blaða- og fréttamenn eru þar eins og mýflugur á mykjuskán, en talið er að yfir þúsund fréttamenn séu á staðnum enda þykir málið þess virði að eyða dágóðum tíma í daglega umfjöllun um það. Að mati þýska fréttamannsins Ulrichs Oppolds hefur málið allt sem góð frétt þurfi að hafa. Um sé að ræða hátt fall heimsfrægrar stjörnu, eins frægasta manns í heimi. Þarna spili inn í kynlíf og eiturlyf en ekki sérlega mikið af rokki. Í dag var reynt að skipa kviðdóm í málinu en það reyndist flókið mál og langdregið. Þeir sem fylgdust með segja frægðina flækjast fyrir í réttarsalnum þó að Jackson hafi látið lítið fyrir sér fara þar. Búist er við löngum réttarhöldum og Sheri Wilkins, einn aðdáenda Jacksons, ætlar sér að styðja stjörnuna hvern dag þeirra. Hún segir að hún hafi sagt upp starfi sínu sem leikskólakennari eftir þrettán ár í starfi og flutt til Santa Barbara vegna réttarhaldanna. Hún ætli að styðja hann hvern einasta dag og hún viti að hann sé saklaus og að hann hljóti uppreisn æru. Ekkert sé mikilvægara en að berjast fyrir réttlætinu. Sekt eða sakleysi virðast vekja minnsta athygli þegar málareksturinn er annars vegar og skoðanir oft myndaðar á grundvelli annars en þeirra staðreynda sem kynntar hafa verið. Í réttarsalnum í dag var líka fimmtán ára gamall piltur sem er að ná sér af krabbameini, en Jackson á að hafa beitt hann kynferðisofbeldi.
Menning Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira