Stofnað eftir hörmungar 29. janúar 2005 00:01
Í dag er 77 ára afmæli Slysavarnafélags Íslands, sem stofnað var í Reykjavík 29. janúar árið 1928. Félagið heitir í dag Slysavarnafélagið Landsbjörg eftir sameiningu við björgunarsveitir Landsbjargar árið 1999. Fyrsti formaður félagsins var Guðmundur Björnsson landlæknir. "Félagið var stofnað í kjölfar mikillar umræðu í landinu, sérstaklega um sjóslys," segir Þorsteinn Þorkelsson, fjármálastjóri hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, en hann er að auki félagi í Björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík og sagnfræðimenntaður. "Það voru ákveðnir menn sem nefna mætti forkólfa í málinu, svo sem Oddur V. Gíslason í Grindavík. Hann gaf út slysavarnablað sem nefndist Sæbjörg og beitti sér fyrir slysavörnum til sjós." Þá segir Þorsteinn að mannskæð sjóslys í aprílmánuði árið 1906 hafi orðið til þess að umræða um slysavarnir jókst til muna. "Það var ekki síst fyrir Ingólfsslysið við Viðey þar sem Reykvíkingar þurftu að horfa upp á menn farast án þess að geta komið þeim til hjálpar," segir hann, en kútter Ingólfur fórst eftir að hafa kastað akkeri við Viðey vegna þess að ófært var inn í Reykjavíkurhöfn. Gríðarlegir brimskaflar gengu yfir skipið og tíndu menn útbyrðis einn af öðrum þannig að öll 20 manna áhöfn skipsins fórst. "Þá sáu menn að til þyrfti að vera búnaður til að koma mönnum til bjargar og var þá helst horft til svokallaðs fluglínutækis, þar sem skotið er línu með björgunarstól." Samfélagsumræða um nauðsyn þess að koma á fót samtökum sem héldu utan um slysavarnarmál skilaði sér svo að lokum með stofnun Slysavarnafélags Íslands. "Á Alþingi var lagt fram frumvarp til laga um lög félagsins og greinargerð um þau," segir Þorsteinn og bætir við að þáverandi landlæknir, sem varð fyrsti formaður félagsins, hafi verið í forsvari undirbúningsnefndar um stofnun félagsins. "Þetta er auðvitað hörkusaga sem sjálfsagt væri efni í heila bók."
Innlent Menning Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira