Ég sá þarna fallega sópran 26. janúar 2005 00:01
Það kom ekki til af góðu einu að Thorstein settist á skólabekk á Íslandi haustið 1970. Hann og fleiri þurftu að sækja læknanám sitt utan landsteinanna þar sem norskir háskólar önnuðu ekki eftirspurn eftir plássum í læknadeildinni. "Ég var hér í sex ár og það voru mjög skemmtileg ár," segir Thorstein. Hann var á Íslandi á dögunum til að kynna samstarfsverkefni Blóðbankans og norsku stofnfrumugjafaskrárinnar um stofnun slíkrar skrár á Íslandi. Thorstein er yfirlæknir við ónæmisdeild Ríkisspítalans í Ósló og kom stofnfrumugjafaskránni þar í landi á laggirnar fyrir fimmtán árum. Á námsárunum kynntist hann eiginkonu sinni Steinunni Einarsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau dæturnar Elínu Maríu og Rebekku. "Við Steinunn kynntumst í kór sem var tengdur KFUM og K. Ég sá þarna fallega sópran sem þurfti að athuga betur," segir Thorstein og hlær þegar hann rifjar upp fyrstu kynni þeirra hjóna. Þau syngja enn saman, eru í kirkjukór í Ósló og komu í söngferðalag til Íslands síðastliðið vor. Margt hefur breyst Koma Thorsteins til Íslands á sínum tíma bar brátt að. "Ég fékk símskeyti 8. september og þar stóð að ef ég gæti komið til Íslands viku síðar og verið við skólasetningu fengi ég pláss. Ég skildi fátt annað í símskeytinu og bróðir minn sem var að læra forn norræn mál skildi heldur ekki neitt. Ég vissi því ekki hvað ég var að fara út í. En það var vel tekið á móti mér og þetta gekk allt saman mjög vel." Fleiri norðmenn numu við læknadeildina og sömuleiðis nokkrir Svíar. Skandinavíski hópurinn hélt mikið saman, sótti Norræna húsið og hélt sín partí. Thorstein kunni vel við sig í Reykjavík þó annar bragur hafi verið á borginni þá en nú. "Mér fannst svo margt ófrágengið, hér var mikið af fokheldum húsum og slíku. Svo var úrvalið í búðunum lítið, nánast engir veitingastaðir og þetta var eins og að koma út í sveit. Ósló var líka sveitarleg á þessum tíma og bekkjarbræður mínir kölluðu borgina stærsta sveitaþorp heimsins. Ósló hefur breyst mikið en Reykjavík enn meira." Og til marks um afstöðu læknanema á Íslandi fyrir 35 árum til Óslóar og Noregs rifjar Thorstein upp að ekki hafi hvarflað að nokkrum manni að fara þangað til framhaldsnáms. Allir vildu til Svíþjóðar, Bandaríkjanna eða Bretlands. "Nú hefur þetta breyst og margir Íslendingar stunda framhaldsnám í Noregi." Kári klár Úr hópi skólabræðra Thorsteins í læknisfræðinni eru tveir honum afar eftirminnilegir. "Frægasti skólabróðir minn var Kári Stefánsson og ég man mjög vel eftir honum. Hann var afar fær nemandi, mjög duglegur og alltaf á toppnum í öllum fögum. Það er ótrúlegt hvað Kári hefur náð langt en það kemur mér ekki á óvart, hann var svo duglegur og áhugasamur." Thorstein nefnir líka Stefán Karlsson, prófessor í Lundi, sem eftirminnilegan samnemanda. "Hann var með þeim fyrstu sem settu gen inn í frumur og veitir genameðferð við ákveðnum sjúkdómum. Hann er með þeim allra fremstu í sinni röð. Stefán og Kári eru heimsfrægir og það var gaman að vera með þeim í skóla." Sjálfur hefur Thorstein unnið afar merkilegt starf við ónæmisdeild Ríkisspítalans í Ósló. Hann setti stofnfrumugjafaskrána á fót og hefur unnið að uppbyggingu hennar í fimmtán ár. Þá hefur hann doktorsnema undir sinni handleiðslu og nú um stundir er Íslendingurinn Ólafur Sigurjónsson hjá honum. "Ólafur er að vinna að því að búa til heilafrumur úr stofnfrumum í beinmerg. Við vitum ekki hvort hægt verður að nota þetta í framtíðinni en vonumst til að þetta nýtist í meðferð gegn parkinsons og jafnvel fyrir fólk sem hlotið hefur mænuskaða. En það verður bara að koma í ljós." Og yfirlæknirinn lætur vel af doktorsnemanum."Ólafur er prýðismaður og ég hef varla haft svona góðan mann fyrr. Hann stendur sig mjög vel." Íslenska og norska Íslenskukunnátta Thorsteins er afar góð en hann segir það vandmál hve Steinunn kona hans talar góða norsku. "Ég tala íslensku við Steinunni en hún norsku við mig. Þess vegna hef ég gleymt íslenskunni heilmikið og þarf lengri tíma til að finna orðin og beygi sjálfsagt enn vitlausar en ég gerði áður." Hann heldur góðu sambandi við Ísland og Íslendinga en fylgist ekki með daglegri umræðu. Þegar hann var hér á dögunum las hann þó blöðin. "Ég sé að nú er mikið rætt um hvernig Ísland tók á íraksmálinu en það kom mér á óvart þegar stríðið byrjaði að Ísland studdi innrásina. Á norðurlöndunum var almennt neikvætt viðhorf til málsins nema í Danmörku. Norðmenn voru á móti þrátt fyrir að hafa alltaf fylgt Bandaríkjamönnum í öllum Natóaðgerðum. Við höfum hins vegar tekið þátt í því sem kallað er uppbygging landsins," segir Thorstein sem finnst alla jafna mjög gaman að koma til Íslands. "Landið er framandi það er stórkostlegt að vera í náttúrunni þar sem saman koma ís, fjöll, heita vatnið og hverirnir. Hér er mjög fallegt í góðu veðri og nú er til dæmis afar fallegt að horfa á Esjuna." Spurður um muninn á Íslendingum og Norðmönnum nefnir Thorstein hve Íslendingar eru vinnusamir. Dugnaðurinn á öðrum sviðum vekur líka athygli hans. "Íslendingar eru alltaf til í tuskið. Norðmenn fara snemma í háttinn til að geta farið á skíði morguninn eftir en þá byrjar ballið hjá Íslendingunum og þeir vilja halda áfram."
Innlent Menning Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira