Kona sjómannsins fær góða dóma 21. janúar 2005 00:01
Þrátt fyrir að nýjasta plata Emiliönu Torrini, Fishermans Woman, verði ekki gefin út fyrr en 31. janúar hafa margir gagnrýnendur gefið sitt álit á henni. Platan virðist falla vel í kramið hjá tónlistaráhugamönnum og hún fær jákvæða dóma hvarvetna á internetinu. Tónlistartímaritið Q gefur plötunni þrjár stjörnur af fimm mögulegum og segir gagnrýnandinn Dan Gennoe hana vera hina fínustu plötu frá hinni íslensku tónlistarkonunni. Með því á hann sennilega við að þetta sé ekki Björk heldur hin íslenska söngkonan. Hann minnist á að síðasta plata hennar, Love In The Time Of Science, hafi farið framhjá mörgum og einnig minnist hann að sjálfsögðu á lagið Slow sem hún samdi fyrir Kylie Minogue. Fishermans Woman þykir honum vera algjör andstæða við síðustu plötu vegna hversu órafmögnuð hún er. Lögin þykir honum bergmála af missi og eimmanaleika en þó segir hann gleðina í barnalegri röddu Emiliönu lyfta vonleysislegum tóni plötunnar heilmikið upp. Gagnrýnandi breska dagblaðsins Guardian gefur plötunni fjórar stjörnur af fimm og fer fögrum orðum um hana. Hann líkir plötunni við rómantískan kvöldverð og hrá gítar- og píanóhljóð minna hann á fjarlægt glamr í postulínsdiskum. Röddin þykir honum kristaltær og lögin sorglega falleg og í þeim undirtónn einmanaleika og þunglyndis. Í bestu lögunum að hans mati, Lifesavers og Next Time Around segir hann Emiliönu hafa tekist að ná þeim áhrifum sem fáum öðrum en Nick Drake og Leonard Cohen hefur tekist. Í lokin segir hann að í lögunum leynist miklar skapsveiflur en ýjar að því að fáir muni standast fegurð þessarar plötu.
Menning Mest lesið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Sjá meira