Fanney er ritari Brunetti 20. janúar 2005 00:01
Þær eru ekki margar konurnar á Kárahnjúkum en þó nokkrar og sinna ýmsum störfum, aðallega skrifstofuvinnu. Fanney Magnúsdóttir er ein þessara kjarnakvenna. Hún er ritari Luciano Brunetti en hann er einn af toppstjórnendum Impregilo á Íslandi og sér um fjármál og starfsmannamál. Fanney kom til starfa hjá Impregilo í lok júní í fyrra en hún var leiðbeinandi við grunnskólann í Brúarási. Hún missti vinnuna þegar réttindakennari var ráðinn til starfa. Hún hafði áður starfað sem ritari og var því kjörin til starfans. Hún sinnir einkum skjalavörslu, símsvörun og almennri skrifstofuvinnu. Stór hluti af starfinu er líka þýðingar af ensku á íslensku og öfugt. Aðrir starfsmenn eru síðan fengnir til að grípa í þýðingar eftir því hvert móðurmál þeirra er og svo er leitað til löggilts skjalaþýðanda þegar þörf krefur. Fanney er búsett í Fellabæ en hefur herbergi á Kárahnjúkum. Hún stundar fjarnám við Kennaraháskólann og eyðir því frítíma sínum yfirleitt í námið. Eftir að vinnudegi lýkur klukkan sex sest hún við tölvuna inni í herbergi til að læra. Um helgar fer hún alltaf heim og stundum skreppur hún heim á kvöldin eftir að vinnudegi lýkur ef veður leyfir. Hún hefur því ekki sótt mikið félagslífið á staðnum en Impregilo rekur klúbb í félagsmiðstöðinni og þar er hægt að gera ýmislegt sér til afþreyingar; horfa á fréttir eða vídeó og tefla eða spila. Á laugardagskvöldum er pitsa og þá er hægt að dansa eða fara í karaókí. Fanneyju finnst gott að vinna á Kárahnjúkum. "Fólkið er gott og það er sérstakt og gaman að vera í svona alþjóðlegu umhverfi," segir hún. Karlarnir á Kárahnjúkum eru notalegir við konurnar á staðnum, jafnvel þeir íslensku eru farnir að opna dyr og sýna háttvísi og kurteisi í umgengni.
Innlent Menning Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira