Er loksins að fullorðnast 5. janúar 2005 00:01 "
Ég er búin að hafa það mjög gott um jólin," segir Þórunn Erna Clausen leikkona sem hefur verið á ferðalagi á milli Akureyrar og Reykjavíkur öll jólin en hún leikur í söngleiknum Óliver sem Leikfélag Akureyrar sýnir þessa dagana. "Við erum rjúpnafjölskylda og höfum því þurft að vera svolítið frjálsleg síðustu jólin og í ár vorum við mjög ójólaleg og elduðum nautalundir sem var mjög fínt þó rjúpnalyktina hafi vantað en árlegi kalkúnninn á Gamlárskvöld reddaði málunum. Þrátt fyrir vonda veðurspá komst ég heim yfir hátíðarnar en annars hafa jólin að mestu leyti farið í vinnu. Frumsýningin gekk vel, fullt út að dyrum og allir voða kátir. Ég er búin að vera á eilífum þeytingi en ég vona að veðrið verði gott svo ég komist nú aftur norður," segir Þórunn og bætir við að á Akureyri hafi verið rosalega jólalegt en hún hafi þó saknað að hafa ekki fjölskylduna í kringum sig. Þórunn býr ásamt sambýlismanni sínum, Sigurjóni Brink tónlistarmanni, á góðum stað í Garðabæ. Þau eru að vísu búin að finna sér stærri íbúð sem þau munu flytja í í apríl. Sófinn í stofunni er uppáhaldsstaðurinn hennar á heimilinu en þaðan hefur hún ágætis útsýni á Snæfellsjökul. "Ég hef alltaf verið Garðbæingur, fyrir utan árin sem ég átti heima í útlöndum. Íbúðin sem við erum að flytja í er hér rétt hjá og því mun ég halda mig áfram við Garðabæinn." Aðspurð um nýliðið ár segist Þórunn Erna afar sátt. "Þetta er búið að vera skemmtilegt vinnuár og það er búið að vera mikið að gera. Hápunkturinn var frumsýningin á leikritinu Þetta er allt að koma og að fá að leika í Reykjavíkurnóttum sem eru grínþættir í "sitcom" stíl sem verða sýndir á stöð 2 í febrúar, og það var einnig mikill heiður að vera tilnefnd til Edduverðlaunanna. Ég held að árið 2005 verið einnig mjög spennandi og spái að það séu mikilla breytinga að vænta í persónulega lífinu. Lestu ítarlegt viðtal við Þórunni Ernu í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.
Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira