Réðum illa við eldinn ef kviknaði í í Örfirisey 12. desember 2005 20:00
Olíubirgðastöðin fyrir norðan Lundúnir sem stendur í ljósum logum er af svipaðri stærð og olíubirgðastöðin í Örfirisey. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki nægar froðubirgðir til í landinu til þess að slökkva eld eins og þann sem logar í Bretlandi. Forsvarsmenn olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey fylgjast með brunanum í Bretlandi og bíða eftir upplýsingum um hvað olli honum til að sjá hver hættan er hér. Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, segir stöðina sem nú er í ljósum logum í Bretlandi svipaðrar stærðar og með svipað eldsneyti og olíubirgðastöðin í Örfirisey. "Ef við yrðum fyrir einhverjum þeim skakkaföllum sem urðu þarna er ekkert til að segja að þetta gæti ekki gerst hér," segir hann. Hann segir þó erfitt að tala um líkur á slíku, þar sem hann þekki ekki aðstæður og öryggisráðstafanir í stöðinni í Bretlandi. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri sagði í hádegisviðtalinu á NFS að ef eldur kæmi upp í olíubirgðastöðinni í Örfirisey þyrfti að rýma stór svæði. Vindátt réði mestu um hversu stórt svæði þyrfti að rýma og gæti einnig gert slökkvistarf mjög erfitt, þannig gæti reynst erfitt að komast að stöðinni ef reykinn legði yfir einu aðkomuleiðina að stöðinni. Jón Viðar sagði að froðubirgðir hér á landi væru ekki nægar til þess að ráða niðurlögum elds eins og nú logar í Bretalandi og að við þyrftum að fá froðubirgðir frá Norðurlöndunum kæmi slíkur eldur upp hér. Hörður segir það vandasamt verk að finna olíubirgðastöðinni nýjan stað því ef hún verður langt frá borginni muni flutningar á bensíni til borgarinnar aukast til muna. Hann segir Olíudreifningu þó lengi hafa verið á því að flytja eigi flugvélaeldsneytið í tanka hersins við Helguvík.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira