Óljóst um tildrög banaslyss 12. desember 2005 19:14 Brunnið flak bílsins á slysstað. MYND/KK
38 ára karlmaður lést þegar bifreið sem hann ók lenti út af Svalbarðsstrandarvegi við bæinn Sætún í austanverðum Eyjafirði snemma í morgun. Maðurinn var einn í bifreiðinni en vegfarandi tilkynnti lögreglu um alelda bifreið, utan vegar, þegar klukkan var 13 mínútur gengin í sex í morgun. Slökkvilið og lögregla voru strax send af stað frá Akureyri en vegfarendur sem komu að slysinu reyndu að slökkva eldinn með handslökkvitæki en fengu ekki við neitt ráðið. Ekki er hægt að birta nafn hins látna að svo stöddu en hann var búsettur á Akureyri; ógiftur en þriggja barna faðir. Niðamyrkur var þegar slysið átti sér stað en vegurinn alauður sem að sumarlagi. Ekki þurfti að loka þjóðveginum vegna slyssins en beðið var með rannsókn þar til birti. Á meðan stóðu lögreglumenn vakt um slysstaðinn og beindu umferð frá vettvangi. Tildrög slyssins eru ekki að fullu ljós en rannsókn stendur enn yfir. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er ekki hægt að útiloka að ölvun hafi átt þátt í slysinu en að svö stöddu er heldur ekki hægt að fullyrða að svo sé. Af ummerkjum á slysstað að dæma fór bifreiðin hægra megin út af þjóðveginum en engin bremsuför eru þó sýnileg. Framendi bifreiðarinnar stakkst inn í heimreiðina að Sætúni, sem liggur þvert á þjóðveginn, en við það kastaðist bifreiðina á loft og hafnaði á hvolfi hinum megin við heimreíðina.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira