Innlent

Léleg laun fyrir umönnunarstörf

 

Starfskona á sambýli er með 136 þúsund krónur í grunnlaun. Starfskona á leikskóla er með 125 þúsund krónur í grunnlaun og starfskona á elliheimili er með 116 þúsund krónur í grunnlaun. Þetta eru dæmi um mánaðartekjur kvenna í láglaunastörfum fyrir skatta.

Tæplega fimmtíu þúsund manns kröfust jafnrétti á kvennafrídaginn í gær í kröfugöngu og á útifundi í Reykjavík þar sem launamisrétti var meðal annars mótmælt. Á skiltum mátti til dæmis lesa að konur væru ekki á útsölu. Mannekla í umönnunarstörfum er þekkt og var hún virkilega slæm nú í haust og er sumstaðar enn. Þetta eru dæmigerð kvennastörf og dæmigerð lálaunastörf.

Þegar rætt var við konur sem starfa á sambýlum og í leikskólum sögðu þær laun sín alltof lág. Fáir karlmenn sinna jafnframt þessum störfum.

Fjórar konur sem rætt var við lögðu niður störf í gær. Foreldrar leikskólabarnanna sóttu börn sín áður störf voru lögð niður og á sambýlinu var hagrætt þannig að sem flestir kæmust frá. Tvær kvennanna, þær sem vinna á elliheimili gátu ekki með nokkru móti komist frá heimilisfólksins vegna. Tölur frá kjararannsóknarnefnd síðasta ársfjórðungs ársins 2004 sína að meðal laun karla voru 296.300 og meðallaun kvenna 223.800. Karlanir unnu tæpum tveimur tímum lengur á viku en voru með rúmlega sjötíu þúsundum hærri meðallaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×