800 grömm af próteini á mann 20. janúar 2005 00:01
Scott David Rigler, framkvæmdastjóri Kárahnjúkadeildar Sodhexo Universal, virðist taka nærri sér þá gagnrýni sem hefur verið á kost starfsmanna Impregilo. Hann hefur starfað víða um heim fyrir hönd fyrirtækisins og segist aldrei hafa lent í eins mikilli orrahríð og hér. Honum er því mikið í mun að leiðrétta þá mynd sem gefin hefur verið. Sodhexo Universal er alþjóðlegur undirverktaki sem sér um innkaup á mat og öðrum nauðsynjum, stýrir mötuneytinu og matvöruversluninni og sér um þrif í vinnubúðunum á Kárahnjúkum. Gagnrýnin á Sodhexo hefur einkum verið á þá lund að maturinn sé ónægur og það segir Rigler að sé rangt. Það sé fyrirtækinu í hag að gera vel. Þegar mennirnir séu mettir og ánægðir vinni þeir vel. Hann segir að gott og ferskt hráefni sé keypt af íslenskum birgjum og flutt að Kárahnjúkum einu sinni í viku. Sodhexo framreiðir heitar máltíðir tvisvar á dag, í hádeginu og á kvöldin, og Rigler segir að þess sé gætt að starfsfólk af öllu þjóðerni fái eitthvað frá sínum heimahögum tvisvar í viku. Í hverri máltíð er gert ráð fyrir 800 grömmum af kjöti eða fiski á mann og Rigler segir að alltaf sé nóg af meðlæti; kartöflum, hrísgrjónum, pasta og spaghettíi auk grænmetis og ávaxta. Matarkostnaðurinn segir hann að sé 30-35 prósent af því sem gerist í öðrum löndum Evrópu. Rigler segir viðskipti Sodhexo við íslenska birgja skipta máli. Það sé gott fyrir samkeppnina að fá svona stóran aðila inn á markaðinn og íslenskir birgjar séu smám saman farnir að sjá að þeir geti lifað af viðskiptunum við Sodhexo. Þá veiti samkeppnin aðhald á markaðnum. Starfsmenn á vegum Rigler sjá um þrifin í vinnubúðunum og sömuleiðis þvotta fyrir verkamennina. Rigler telur heppilegra fyrir Íslendinga að draga úr gagnrýninni og horfa á starf Impregilo og Sodhexo með jákvæðari hætti; reyna að gera eins gott úr þessu og hægt er. Íslendingar geri ekkert annað en að græða á þessum framkvæmdum. "Það er verið að gera auðvelt starf erfitt," segir hann.
Innlent Menning Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira