Fann augnlinsu í sundlaug 18. janúar 2005 00:01
Kristjáni Magnússyni, sundlaugarverði í Vesturbæjarlaug, tókst fyrir skömmu hið ótrúlega þegar hann fann augnlinsu í lauginni sem ítalskur ferðamaður hafði týnt. Ítalinn bað starfsmenn sundlaugarinnar um að koma sér til hjálpar enda var um svokallaða "eilífðarlinsu" að ræða, linsur sem eiga að endast von úr viti. "Þetta eru sextíu tonn af vatni sem ég leitaði í. Við erum með sérstakar ryksugur til þess að hreinsa sandinn úr botninum á lauginni. Ég vissi af þessari týndu linsu svo ég fór vandlega í gegnum ryksugusíuna og fann linsuna," segir Kristján. "Þetta er víst svona linsa sem fólk á ekki að taka úr sér." Aðspurður hvort hann hafi ekki orðið hvumsa við beiðninni um að finna augnlinsu í sundlauginni segir Kristján: "Mér brá ekkert við það að vera beðinn um að finna linsu í lauginni. Ég er vanur svona ævintýrum og í fyrra fann ég lítinn demantseyrnalokk. Þeir í afgreiðslunni sögðu því Ítalanum að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þessu því að á staðnum væri maður sem hefði fundið ótrúlega hluti. Hann var auðvitað ánægður þegar ég fann linsuna og sagðist alltaf ætla að koma í Vesturbæjarlaugina í sund." Kristján hefur unnið sem sundlaugarvörður síðastliðin þrjú ár. "Ég vann áður hjá Slysavarnafélaginu þar sem ég var vélstjóri á björgunarbátnum. Núna er ég orðinn svo gamall að það er voðalega þægilegt að vera þarna í sundlauginni." Kristján hefur komið við sögu á fleiri sviðum því hann sinnir einnig myndlistinni sem áhugamáli. "Jú, ég hélt málverkasýningu fyrir nokkrum árum, við vélstjórarnir, við getum allt," segir hann og hlær.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira