Hagnaður ríkissjóðs alls 91 milljarður 9. desember 2005 07:00 Sala Símans. Einkavæðingarnefnd kynnir sölu Símans. Salan skilaði ríkissjóði 59 milljarða króna tekjum á þessu ári.
Ríkissjóður skilar óvenjulegri rekstrarniðurstöðu árið 2005 að því leytinu til að tekjujöfnuðurinn á þessu ári nemur 91 milljarði króna. Ríkissjóður skilar með öðrum orðum hagnaði sem þessu nemur og hefur svo mikill hagnaður á rekstri ríkissjóðs ekki sést hér á landi og mun varla sjást aftur. Ástæðan er einkum hagnaður vegna sölu ríkisins á Landssímanum en tekjufærður söluhagnaður Landssímans nemur 57,5 milljörðum króna. Einnig hafa aukin umsvif í efnahagslífinu og sú aukna neysla sem hefur einkennt árið áhrif á afkomu ríkissjóðs. Tekjur ríkissjóðs, sem má rekja til einkaneysluútgjalda heimilanna, hafa því aukist verulega frá því sem búist var við, til dæmis tekjur af virðisaukaskatti. Þetta kemur fram þegar skoðuð eru fjárlög og fjáraukalagafrumvarpið árið 2005. Skatttekjur ríkissjóðs eru samtals 318 milljarðar króna á þessu ári. Virðisaukaskattur og aðrir skattar á vörur og þjónustu skila mestu, 160 milljörðum króna. Fjármagnstekjuskattur skilar meiri tekjum en fjárlög gerðu ráð fyrir, sem nemur um 10,5 milljörðum. Skattar á tekjur fyrirtækja og einstaklinga eru líka stór liður. Þeir nema 98,5 milljörðum króna. Vegna aukinna umsvifa í efnahagslífinu er gert ráð fyrir að tekjuskattur einstaklinga skili ríkissjóði 1,3 milljörðum króna meiri tekjum en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Sala eigna skilar ríkissjóði 59 milljörðum króna. Tekjur ríkissjóðs nema því samtals 408,5 milljörðum króna. Gjöld ríkissjóðs nema 317 milljörðum, sem er 91 milljarði meira en tekjurnar sem eru samtals 408,5 milljarðar.
Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Fleiri fréttir Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjá meira