Hátækniflóttinn er hafinn 9. desember 2005 01:00 Jón Ágúst Þorsteinsson "
Úti í Kanada getum við haft þrjá menn í rannsóknum á sama verði og kostar að halda úti einum hér heima. Þetta þýðir að við getum þrefaldað rannsóknarhraðann," segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Marorku hf. og formaður Samtaka sprotafyrirtækja. Hann upplýsir að á næsta ári standi til að flytja þróunarsvið fyrirtækisins til Halifax. "Það var gengið frá þessu í vikunni," segir hann, en fyrirhugaður flutningur kann að vera vísbending um það sem koma skal hjá fleiri hátæknifyrirtækjum. Nýverið upplýstu forsvarsmenn tölvuleikjaframleiðandans CCP að þar hugleiddu menn í alvöru að flytja starfsemi fyrirtækisins úr landi. "Okkur þykir mjög leiðinlegt að þurfa að flytja og við höfum dregið í lengstu lög að taka þessa ákvörðun," segir Jón. @Mynd -FoMed 6,5p CP:upplýsingaTækni í notkun Ráðamönnum hefur á tyllidögum verið tíðrætt um gildi hátækniiðnaðar og um mögulega uppbyggingu þekkingarþorpa í Vatnsmýri og í Garðabæ. Fréttablaðið/GVA Úti í Halifax segir Jón Ágúst fyrirtækinu í raun bjóðast ótrúleg fríðindi. "Margir styrkir, skattaafslættir og endurgreiðslurfrá skattinum og svo náttúrlega húsnæði fyrir mjög lítið. Að auki stendur okkur til boða opinn aðgangur að háskólanum og möguleikar á enn frekari styrkjum," segir hann og bætir við að í Halifax geti fyrirtækið keyrt rannsóknarstarfsemi sína fyrir sáralítið fé. "Í Halifax ætlum við að vera með stóran hluta af rannsóknum okkar og tækniþekkinguna. Við erum bara búin að gefast upp á þessu heima. Maður er búinn að vera núna í þrjú ár að tala um þessi mál, stofnað samtök sprotafyrirtækja og verið að vinna í stjórnmálamönnum til að auka skilning og breyta viðhorfum til hátækniiðnaðarins. En það hefur ákaflega lítinn árangur borið. Ef við ætlum að lifa af í þessu alþjóðlega samfélagi verðum við að fara þangað sem kostnaðurinn er minnstur og mest er gert fyrir okkur." Þarna segir Jón Ágúst að aðbúnaður hér heima og gengisþróun vegi ámóta þungt. Ávinningur Halifax við að laða til sín hátækniiðnað felst helst í því, að mati Jóns Ágústs, að halda menntuðu fólki í fylkinu. "Fólkið fer þangað sem störfin bjóðast. Þeir vilja fá til sín hátæknifélög til að byggja upp þekkingarsamfélag og skapa þannig grunn að framtíðinni, því þeir eru jú líka að missa frá sér hefðbundinn iðnað sem menn eru að fara með til Austur-Evrópu eða Asíu. Í staðinn byggja þeir tæknifyrirtækin sín upp með markvissum hætti." Hér heima standa stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, fyrir UT-deginum 24. janúar. "UT-deginum er ætlað að beina sjónum að þeim tækifærum og möguleikum sem við höfum á sviði upplýsingatækni," segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formann Vísinda- og tækniráðs, við vinnslu fréttarinnar.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira