Jólaóratórían flutt í heild ásamt nýfundnu aríunni 9. desember 2005 09:30 Hulda Björk Garðarsdóttir syngur nýfundna aríu eftir Johannes Sebastian Bach ásamt því að syngja einsöng í Jólaóratóríunni á þrennum tónleikum í Hallgrímskirkju um helgina.
Jólaóratóría Bachs er sjaldnast flutt í heilu lagi, hvað þá með fullskipaðri barokkhljómsveit eins og gert verður í Hallgrímskirkju núna um helgina. Aukabónus á tónleikunum verður nýfundin aría eftir Bach sem hafði verið týnd í tæp 300 ár. "Þetta eru þrír tímar af stórkostlegri músík frá uppphafi til enda," segir Halldór Hauksson, einn af söngvurunum í kammerkórnum Schola cantorum. Kórinn flytur Jólaóratóríu Bachs í Hallgrímskirkju núna um helgina ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Haag. "Það er gaman að geta á einum degi heyrt alla óratóríuna á tvennum tónleikum því hún hljómar ekki oft hér á landi og hefur aldrei hljómað í heild sinni í flutningi barokkhljóðfæra." @Mynd -FoMed 6,5p CP:Alþjóðlega Barokksveitin í Haag Komin hingað til lands í þriðja sinn á einu ári til þess að spila Bach í Hallgrímskirkju. Alls verða þrennir tónleikar í Hallgrímskirkju um helgina. Á laugardeginum verða fyrstu þrjár kantötur óratóríunnar, af samtals sex, fluttar saman á tónleikum sem hefjast klukkan 17. Á sunnudeginum verða þessar þrjár fyrstu kantötur fluttar aftur klukkan 15, en síðan hefjast aðrir tónleikar klukkan 18 þar sem seinni helmingur óratóríunnar, síðustu þrjár kantöturnar, verða fluttar. Einsöngvarar verða þau Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Ágúst Ólafsson bassi. Á laugardeginum fá tónleikagestir auk þess sérstakan bónus, því þá ætlar Hulda Björk Garðarsdóttir að syngja í upphafi tónleikanna aríu eftir Bach sem fannst núna í ár í Weimar í Þýskalandi. "Þetta var alveg óþekkt verk og engar heimildir til um það, en allt í einu dúkkar það upp og menn gerðu sér grein fyrir því eiginlega samstundis að þetta væri klárlega eftir Bach. Það voru mikil tíðindi í tónlistarheiminum," segir Halldór, sem fékk tækifæri til að hlýða á þessa nýfundnu aríu frumflutta í Weimar í ágúst síðastliðnum. "Okkur finnst gaman að bjóða upp á þetta sem forspil á fyrstu tónleikunum. Þetta er gríðarlega fallegt verk sem hann samdi tiltölulega ungur að árum, en það sýnir að hann var þá þegar búinn að ná upp þeirri tækni sem hann nýtti sér síðar meir, til dæmis við gerð Jólaóratóríunnar." Barokkhljómsveitin frá Haag er farinn að verða fastagestur hér á landi, því hún er að koma hingað til lands í þriðja sinn á einu ári. Hún flutti fyrri hluta Jólaóratóríunnar í Hallgrímskirkju fyrir ári og svo kom hún hingað í sumar til þess að taka þátt í flutningi Matteusarpassíunnar á sama stað. Hljóðfæraleikararnir hafa allir sérhæft sig í að leika á hljóðfæri frá barokktímanum, sem eru töluvert frábrugðin þeim hljóðfærum sem nú tíðkast mest. "Munurinn er einkum sá að þau eru hljómminni og um leið kannski hljómléttari. Það er léttari bragur yfir slíkum hljómsveitum og það hentar ákaflega vel fyrir þessa músík sem er margrödduð þar sem raddirnar fléttast saman. Í þessari tónlist er minna um það að ein rödd sjái um laglínuna og svo séu bara hljómar undir í hinum hljóðfærunum. Þá er gott að geta heyrt vel í hverri rödd fyrir sig því vefurinn verður allur skýrari."
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira