Enginn greiddi atkvæði á móti 10. september 2005 00:01
Enginn þriggja fulltrúa stjórnarandstöðunnar í bankaráði Seðlabankans greiddi atkvæði gegn því að bankastjórar hækkuðu í launum um tuttugu og sjö prósent í þremur áföngum fram til ársins 2007. Þeir segjast allir telja að það hefði átt að standa öðruvísi að ráðningu nýs seðlabankastjóra en enginn þeirra íhugar þó að hætta í ráðinu í mótmælaskyni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var ekki á fundinum en Sigríður Stefánsdóttir, hinn fulltrúi Samfylkingarinnar, sat hjá. Hún lét bóka að henni fyndist ekki rétt að bera laun bankastjóra viðskiptabankanna saman við laun Seðlabankastjóra. Nær væri að miða við æðstu stöður hjá ríkinu. Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþingismaður og fulltrúi Vinstri - grænna í bankaráðinu, greiddi atkvæði með launahækkun seðlabankastjóra um tuttugu og sjö prósent. Hann lét þó bóka fyrirvara um það að hann væri ósáttur við að teygja almennt á launastiga æðstu stjórnenda banka og fyrirtækja. Hann sagði í viðtali við Stöð 2 í dag að þetta sé vond þróun, hún sé afleiðing af einkavæðingu ríkisbankanna og Seðlabankinn geti ekki verið eitthvert eyland sem taki ekki tillit til þess sem sé að gerast í kerfinu. Aðspurður hvort ekki hefði verið eðilegra með hliðsjón af afstöðu hans að greiða atkvæði gegn þessu sagði Ragnar að það mætt kannski deila um það. Hann hafi hins vegar í „prinsippinu“ verið sammála því að það væri óhjákvæmilegt að endurskoða launakjör bankastjóra og því hefði verið ábyrgðarleysi að standa fyrir utan þykjast og ekkert sjá hvað væri að gerast í kring. Forsætisráðherra árið 2001, sem var Davíð Oddsson, nýskipaður seðlabankastjóri, hafði frumkvæði að því að lögum var breytt á þá lund að seðlabankastjóri er einhliða skipaður af forsætisráðherra og staðan er ekki auglýst. Öllum bankaráðsfulltrúum stjórnarandstöðunnar gremst hvernig staðið er að ráðningu seðlabankastjóra en ekkert þeirra ætlar að segja sig úr bankaráðinu til að fylgja orðum sínum eftir. Sigríður Stefánsdóttir segir alveg skýrt að Samfylkingin telji að það eigi að standa öðruvísi að ráðningu seðlabankastjóra. Bankaráðið taki hins vegar ekki þátt í ráðningu seðlabankastjóra nú líkt og fyrir árið 2001. Aðspurður hvort þetta sé spillt kerfi segir Ragnar að hægt sé að kalla það því nafni; það kalli á að tekið sé tillit til stjórnmálaskoðana þeirra sem ráðnir séu en ekki að verið sé að velja þá sem hæfastir séu.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Sjá meira