Tala látinna líklega ofmetin 10. september 2005 00:01
Færri kunna að hafa látist af völdum fellibylsins Katrínar en fyrst var óttast. Starf björgunarsveitarmanna beinist nú fyrst og fremst að því að hafa uppi á líkum í New Orleans. Það er fyrst nú sem björgunarsveitarmenn hafa getað gefið sér tíma til að leita að líkum í New Orleans því fram að þessu hafa allir þeirra kraftar farið í að bjarga fólki í neyð. Undanfarinn sólarhring hafa björgunarmenn gengið í hvert hús, bæði í leit að líkum og eins til að flytja burt þá sem enn þrjóskast við á heimilum sínum. Eftir gróflega leit um borgina bendir margt til að mun færri hafi farist í borginni en talið var í fyrstu. Óttast var að allt að tíu þúsund manns hefðu farist bara í New Orleans en enn sem komið er eru staðfest dauðsföll bara brot af þeirri tölu. Betur hefur gengið að flytja fólk burtu en útlit var fyrir. Þannig hefur enn ekki komið til verulegra átaka og flestir virðast loks farnir að átta sig á því að það sé best að hlýða og yfirgefa borgina. Það hefur sitt að segja að ránum hefur fækkað mjög eftir harðar aðgerðir yfirvalda og fólk óttast ekki lengur að skilja eigur sínar eftir. Vatn hylur ennþá um sextíu prósent borgarinnar en vel hefur gengið að dæla því burt og miklir þurrkar hafa hjálpað til. Dælurnar sem búið er að koma fyrir um alla borg eru heldur engin smásmíð og samanlagt dæla þær á hverjum klukkutíma vatni sem gæti fyllt meira en fjögur hundruð keppnissundlaugar. Vonast er til að búið verði að dæla öllu vatni úr borginni í lok október. Í gær var tilkynnt að Michael Brown, yfirmaður almannavarna, stýrði ekki lengur björgunaraðgerðum á hamfarasvæðunum. Í hans stað mun Thad Allen, yfirmaður strandgæslunnar, taka við stjórnartaumunum. Brotthvarf Browns hefur samt ekkert minnkað þrýstinginn á Bush Bandaríkjaforseta og Michael Shertoff, yfirmann heimavarnarmála. Þingmenn demókrata vilja að óháð rannsóknarnefnd verði látin fara yfir málið og Bush sjálfur verði látinn svara fyrir seinaganginn og klúðrið við björgunarstörfin.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira