Innlent

Þung umferð niður í miðbæ

Á Miklubraut fyrir nokkrum mínútum
Á Miklubraut fyrir nokkrum mínútum NFS/LVP

Umferð niður í miðbæ er mjög þung þessar mínúturnar enda streyma konur þangað að taka þátt í dagskrá kvennafrídagsins.

Búið er að loka fjölmörgum vinnustöðum vegna aðgerðanna, til að mynda lokaði í bönkum og leikskólum klukkan tvö. Kröfuganga frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg er í þann mund að hefjast núna. Klukkan átta mínútur yfir tvö höfðu konur unnið fyrir sínum launum ef miðað er við átta stunda vinnudag og litið til þess að konur hafa um 64 prósent af atvinnutekjum karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×