Mikil aukning í útgáfu vegabréfa 8. maí 2005 00:01
Bandaríkjaferðum Íslendinga fjölgaði um helming í vetur miðað við árið á undan. Útgáfa nýrra vegabréfa hefur aukist í takt við það, enda þarf rafrænt vegabréf til að ferðast til Bandaríkjanna. Það er þó mögulegt að sleppa með það gamla enn um sinn - en bara einu sinni. Það er setið við frá morgni til kvölds hjá vegabréfadeild Útlendingastofnunar, enda fjölgar umsóknum um ný vegabréf með hverjum degi. Elín Inga Arnþórsdóttir, yfirmaður vegabréfadeildar, segir að um 30% aukning hafi orðið fyrstu tvo mánuði ársins og núna stefni í 50% aukningu. Elín segir að af samtölum við umsækjendur að dæma megi ætla að þessi fjölgun sé í beinu samhengi við lágt gengi dollarans - margir vilji nýta sér það. Bandaríkjamenn hafa krafist þess síðan í október að allir sem þangað ferðast hafi svokallað rafrænt vegabréf. Það eru ekki allir jafn ánægðir með það; finnst vesen að fá sér ný og á jafnvel nokkur ár eftir af því eldra. Margir þurfa því að óska eftir flýtiafgreiðslu á vegabréfi sem kostar 10.100 krónur. Vegabréfaútgáfan malar því væntanlega gull fyrir ríkissjóð um þessar mundir en 40 þúsund ný vegabréf voru gefin út í fyrra og reiknað er með að þau verði mun fleiri í ár. Samtals er búið að gefa út ríflega 170 þúsund rafræn vegabréf og miðað við að Íslendingar eru ekki nema tæp 300 hundruð þúsund hlýtur að fara að líða að því að toppnum sé náð. En fyrir þá sem neita í lengstu lög að fá sér nýtt vegabréf, en vilja samt fara til Bandaríkjanna, þá er örlítil smuga. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi FL Group, segir að þeir sem ferðist með gamalt vegabréf til Bandaríkjanna fái undanþágu til 25. júní. En bara einu sinni - þar lesa landamæraverðir yfir fólki og því er sagt að það þýði ekki að reyna að koma þangað aftur á gömlu vegabréfi. Guðjón segir flugfélagið reyna að fylgjast með því vegna þess að ef það gerist þá verði fólki meinað að koma inn í landið og flugfélagið sektað.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira