Formaður VG vill skýr svör stjórnvalda um fangaflug 2. nóvember 2005 06:45 Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður
Formaður Vinstri grænna spyr stjórnvöld hvort þeim sé kunnugt um að bandaríska leyniþjónustan hafi haft viðdvöl hér á landi með fanga sem hugsanlega sæti pyndingum. Stjórnvöld telja slíkt ósannað en bíða upplýsinga um málið. "Ég rökstyð fyrirspurn mína á Alþingi með þeim gögnum sem ég hef," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna. Hann hefur óskað svara frá Geir H. Haarde utanríkisráðherra við spurningum um hugsanlegar ferðir bandarísku leyniþjónustunnar með fanga um íslenska lofthelgi og um viðkomu slíkra véla á Keflavíkurflugvelli. Þingfundir verða aftur í næstu viku að lokinni kjördæmaviku þingmanna og má búast við svörum utanríkisráðherra um miðja vikuna. Steingrímur spyr hvort ráðuneytinu sé kunnugt um að flugvélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar með fanga eða meinta hryðjuverkamenn, hafi farið um íslenska lofthelgi. Hann spyr jafnframt hvort utanríkisráðherra telji meðferð fanga, sem ekki njóti verndar og réttinda sem venjulegir borgarar, brot á alþjóðalögum og hvort íslensk stjórnvöld ætli að meina flugvélum með fanga eða meinta hryðjuverkamenn aðgang að íslenskri lofthelgi og afnot af íslenskum flugvöllum. Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International vekur athygli á að algert bann við pyndingum og illri meðferð feli einnig í sér algert bann við að flytja fanga til ríkis þar sem hætta sé á að hann verði pyntaður eða látinn sæta grimmilegri meðferð. "Erlendum stjórnvöldum ber að sækja um yfirflugs- og lendingarleyfi vegna flugvéla sem fara inn í lofthelgina eða lenda," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún segir að borgaralegt flug sé ekki háð slíkum kvöðum og þurfi aðeins að tilkynna um áætlun sína. "Við höfum ekki fengið umsóknir vegna annars flugs og getum ekki staðfest að í flugvélunum hafi verið fangar."
Innlent Mest lesið Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Innlent Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Innlent Sendiherraefnið biðst afsökunar Innlent Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Innlent Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Innlent Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Innlent Borgin segir upp leigusamningi og 54 barna leikskóla að óbreyttu lokað Innlent „Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Innlent Kallar eftir upplýsingum um kínverska strætisvagna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Dómari skapað hættulegt fordæmi fyrir ofbeldismenn Fjöldi kynferðisbrota í fyrra heldur yfir meðaltali Borgin segir upp leigusamningi og 54 barna leikskóla að óbreyttu lokað Finnur vill oddvitasæti VG í Reykjavík og bjóða fram með öðrum flokkum Ólga á norðurslóðum, Eyjagöng og nýr íþróttaálfur Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Kallar eftir upplýsingum um kínverska strætisvagna á Íslandi Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Lá við árekstri flugvélar og „kústa“ vegna gleymsku flugumferðarstjóra Sendiherraefnið biðst afsökunar „Við höfum ekkert að fela“ Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Krónan standi í vegi fyrir innviðaframkvæmdum Fífilsgata verður Túnfífilsgata en ekki Hlíðarfótur „Þarna var ákveðið að verja ekki börnin“ Börnin hafi ekki sætt illri meðferð í skilningi laga „Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Bein útsending: Kynna skýrslu um starfsemi vöggustofu Grín sendiherrans ógni Íslandi Stórstjörnur í briddsheiminum á leið til landsins Vægur dómur yfir ofbeldismanni gagnrýndur og Bandaríkjamenn sakaðir um virðingarleysi Fékk 69 milljónir króna fyrir söluna Fyrrverandi þingmaður vill oddvitasæti á Akureyri Vilja stækka friðlýst svæði á Gróttu og Seltjörn Rúmlega tveir af hverjum þremur Mýrdælingum erlendir Leggja afnám áminningarskyldu fyrir þingið Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Geti ekki haldið áfram að fjölga læknanemum samhliða aðhaldskröfu Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Sjá meira