Flugöryggi ógnað vegna niðurskurðar 2. nóvember 2005 03:30 "
Flugöryggi á Keflavíkurflugvelli líður fyrir þennan niðurskurð. Áður höfðum við sex tæki til snjóruðnings sem eru nú aðeins þrjú. Það er ekki til mannskapur til þess að vinna þessa vinnu. Þetta kemur niður á flugbrautum og bremsuskilyrðum fyrir flugvélar," segir Vernharð Guðjónsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli hafa áhyggjur af öryggi flugvéla á vellinum vegna samdráttar og uppsagna á starfsmönnum. Vernharð telur að niðurskurður á þessari þjónustu sé í beinu samhengi við samdrátt hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. "Þetta er kannski táknrænt fyrir það að varnarliðið sé hreinlega að pakka saman," segir Vernharð og bendir á að nýverið hafi gömul kafbátaleitarvél, sem lengi hefur staðið á vellinum sem sýningargripur, verið rifin niður og fjarlægð. "Það vantar einhverja staðfestingu á því sem hér er á ferðinni því að stjórnvöld gefa ekkert upp." Ásgeir Húnbogason, vann við viðgerðir á snjómoksturstækjum á vellinum en var sagt upp í haust: "Ég lét Davíð Oddsson vita af þessari stöðu mála í september. Ég sendi honum tölvupóst ásamt Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra og stjórnmálamönnum úr öllum flokkum og lýsti ástandinu," segir Ásgeir og bætir við: "Mér þykir áhugaleysi samgönguráðherra á málinu vera undarlegt." Jón Böðvarsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli, segir spurninguna snúast um þá staðla sem unnið sé eftir: "Ef þeir hafa raunverulegar áhyggjur af flugöryggi þá væri fagmannlegt hjá þeim að tala við þá aðila sem þeir vinna fyrir. Síðan eru til reglur og staðlar sem segja til um hvað þarf til þess að reka flugvöll."
Innlent Mest lesið Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Bílstjórinn þrettán ára Innlent Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Innlent Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Innlent Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Innlent Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Innlent „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Innlent Fleiri fréttir Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Sjá meira