Milljarðaframkvæmdum frestað 4. apríl 2005 00:01
Fjárveitingar til vegaframkvæmda á landsvísu verða lækkaðar um tæpa fjóra milljarða króna næstu tvö árin en gert er ráð fyrir að sú upphæð bætist við framkvæmdaféð árin 2007 og 2008. Sé mið tekið af því að fresta varð fjárveitingum til sama málefnis um 1.8 milljarð króna á síðasta ári verða ýmsar tafir á mörgum brýnum verkefnum í samgöngumálum. Þetta kemur fram í nýrri samgönguáætlun sem lögð verður fyrir Alþingi í vikunni. Er þar um endurskoðun á eldri samgönguáætlunum að ræða og kemur fram að áætlunargerð almennt hefur raskast talsvert sökum þess að framkvæmdavísitölur hafa hækkað mun meira en verðlagsforsendur fjárlaga gerðu ráð fyrir. Fram kemur að ríkisstjórnin mun áfram sérstaklega leggja til fé til jarðgangagerðar. Nemur sú upphæð tæpum sex milljörðum króna til árins 2009 en ekki er gert ráð fyrir nýjum jarðgangaverkefnum á því tímabili sem áætlunin nær yfir. Ljúka skal við Fáskrúðsfjarðargöng og Héðinsfjarðargöng verða boðin út síðar á þessu ári. Sunnlendingum verður að hluta að ósk sinni varðandi vegarkaflann milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Gerir áætlunin ráð fyrir að 300 milljónir króna fari til breikkunar kafla vegarins árið 2007. Er þar um að ræða þriðju akreinina yfir Hellisheiði og eins á kafla fyrir neðan Litlu kaffistofuna. Meðal annarra verkefna sem ráðast skal í næstu fjögur árin má nefna framkvæmdir við nýja brú og nýjan veg á Bræðratunguvegi nálægt Flúðum. Ljúka skal endurbyggingu hringvegarins um Norðurárdal í Skagafirði og árið 2008 skal hefja framkvæmdir við gerð nýs vegarstæðis og brúar yfir Hornafjarðarfljót en sá vegur mun stytta Hringveginn um ellefu kílómetra. Samtals er ætlunin að eyða um 6.3 milljörðum króna til verkefna á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu en 9.8 milljörðum annars staðar á landinu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Innlent Fleiri fréttir Eftirför lögreglu yfir Hellisheiðina Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Sjá meira