Tólf fangar í ónýtu fangelsi 14. desember 2005 08:00 Hegningarhúsið við Skólavörðustíg Fangelsið hefur verið rekið á undanþágum um áratuga skeið.
Tólf fangar sitja nú í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, sem rekið hefur verið á undanþágum um áratuga skeið. Í bráðabirgðaskýrslu eftirlitsnefndar Evrópuráðsins segir það óásættanlegt að gæsluvarðhaldsfangar skuli vistaðir þar, enda standist það engan veginn þær kröfur sem nú séu gerðar til slíkra fangelsa. Þetta kemur fram í nýrri greinargerð um stöðu fangelsismála hér á landi, sem forstjóri Fangelsismálastofnunar, Valtýr Sigurðsson, hefur tekið saman. Þar kemur einnig fram að fangelsið í Kópavogi sé allsendis ófullnægjandi til að hýsa kvenfanga í langri afplánun. Að auki eigi það að hverfa á næstu árum samkvæmt skipulagi Kópavogsbæjar. Í því fangelsi dvelja nú tíu fangar. Forstjóri Fangelsismálastofnunar bendir á að í ítarlegri skýrslu Stefáns P. Eggertssonar verkfræðings um uppbyggingu fangelsanna, sem hann vann fyrir dómsmálaráðuneytið, hafi verið talið að 266 milljónir króna þyrfti á árinu 2006 til fangelsismála. Í nýsamþykktu fjárlagafrumvarpi séu taldar fram 50 milljónir króna til að hefja framkvæmdir á Akureyri, auk þess sem gert sé ráð fyrir að framkvæmdir við Kvíabryggju verði fjármagnaðar með ónotuðum fjárheimildum frá fyrri árum. Þær upphæðir nema 27 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum forstjórans. Hann segir enn fremur að ekki sé hægt að leggja Hegningarhúsið niður fyrr en fangelsið fyrirhugaða á Hólmsheiði verði tilbúið. Áætlanir gera ráð fyrir að það verði fyrir árslok 2009. Undanþága fyrir Hegningarhúsið rennur hins vegar út í febrúar 2006.
Innlent Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira