Óviðunandi árangur í byggðapólitík 14. desember 2005 06:00 Valgerður Sverrisdóttir. Umsagnir bera með sér að byggðamarkmiðin séu góð en talsvert skorti á framkvæmdir.
Aðgerðir í byggðamálum frá árinu 2002 hafa ekki skilað nægum árangri á nokkrum landsvæðum, svo sem á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, norðausturhorninu og sunnanverðum Austfjörðum. Þetta kemur fram í mati Byggðastofnunar á framvindu byggðaáætlunar árin 2002 til 2005, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði fram á Alþingi fyrir helgina. Í umsögn Byggðastofnunar segir að við þessu þurfi að bregðast, en það hafi verið gert að nokkru leyti, svo sem með gerð vaxtarsamnings fyrir Vestfirði. Einnig sé unnið að slíkum samningum fyrir Suðurland og Vestmannaeyjar. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Vestmannaeyjar Bæjaryfirvöld Vestmannaeyjabæjar gagnrýna stjórnvöld fyrir að nýta ekki möguleika til að flytja opinber störf út á landsbyggðina og hefðu sjálf viljað fá Vaktstöð siglinga. Stofnunin leitaði álits hjá atvinnuþróunarfélögum og sveitarfélögum víða um land þegar aflað var gagna um framvinduna undanfarin ár. Í samantekt Byggðastofnunar kemur fram að meginmarkmið byggðaáætlunar hafi verið skýrari nú en í fyrri áætlunum enda gætti þar langtímamarkmiða. "Hins vegar kemur einnig fram það sjónarmið að þrátt fyrir að markmið byggðaáætlunar séu góð hafi nokkuð skort á að þeim hafi verið fylgt eftir með framkvæmdum." Efling byggðarlaga með mesta aðdráttaraflið er sagt umdeilt markmið og nokkur sveitarfélög telja sig afskipt í byggðaaðgerðum. Umsagnir af Vesturlandi bera með sér að hlutur landshlutans í byggðaáætlun hafi verið rýr. Vestfirðingar benda á að aðgerðir hafi ekki náð að stöðva fækkun íbúa og starfa og árangur sé að því leyti ekki viðunandi. Þó bindi þeir vonir við nýjan vaxtarsamning. Í umsögnum frá Norðurlandi vestra segir að landshlutinn hafi verið afskiptur í aðgerðum stjórnvalda í byggðamálum. Markmið byggðaáætlunar séu raunhæf en skort hafi aðgerðir. Umsögn er jákvæðari af Eyjafjarðarsvæðinu en þó eru stjórnvöld gagnrýnd fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi við flutning starfa í opinberri þjónustu til svæðisins. Samband sunnlenskra sveitarfélaga taldi í umsögn sinni þörf á að móta sérhæfða byggðastefnu fyrir hvern landshluta. Þótt umsagnir í skýrslu ráðherra byggðamála séu að þessu leyti neikvæðar er vakin athygli á því að íbúaþróun hafi verið hagstæðari undanfarin ár en áður og atvinnuleysi minna. Engu að síður hafi atvinnutekjur ekki aukist á landsbyggðinni jafn mikið og á höfuðborgarsvæðiðnu.
Innlent Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Sjá meira