Hvenær er maður rekinn? 29. nóvember 2005 20:21
Vilhjálmur Rafnsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins til tólf ára, hefur verið rekinn úr starfi að eigin sögn. Og það fyrir orð Kára Stefánssonar. Formaður Læknafélagsins er á öndverðum meiði og segir að ritnefndin hafi einvörðungu verið endurnýjuð þar sem sú gamla hafi verið lömuð. Vilhjálmur hefur ekki ákveðið hvort hann höfði mál á hendur læknafélögunum. Styr hefur staðið um störf Vilhjálms Rafnssonar, nú fyrrum ritstjóra Læknablaðsins, eftir að hann birti harðorða grein Jóhanns Tómassonar læknis um Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar og sumarstörf hans við Landsspítala Háskólasjúkrahús. Í kjölfarið sögðu allir ritnefndarmenn blaðsins af sér utan einn og Kári kærði Vilhjálm til siðanefndar lækna. Vilhjálmur segir að með brottrekstri sínum hafi Læknafélögin orðið við kröfum Kára Stefánssonar, sem hefði meðal annars krafist afsökunarbeiðni vegna greinarinnar og að hún yrði tekin út af vefútgáfu blaðsins og síðar þess að Vilhjálmur yrði rekinn. Vilhjálmur segir að samstarf sitt við Læknafélögin hafi verið með miklum ágætum þar til umræddd grein var birt. Hann ýjar að því að hagsmunatengsl við aðila utan blaðsins hafi haft áhrif á brottreskur sinn. Sigurbjörn neitar því að Vilhjálmur hafi verið rekinn og tekur fram að þrátt fyrir þessar lyktir mála kveðji eigendur blaðsins hann nú með söknuði. Ný ritnefnd hefur verið skipuð og er nýr ábyrgðarmaður Jóhannes Björnsson, yfirlæknir við Landspítalann. Vilhjálmur segist ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort hann muni sækja mál gegn læknafélögunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Sjá meira