Hatturinn hans Dúdda á uppboði 14. janúar 2005 00:01
Söfnunin Neyðarhjálp úr Norðri nær hámarki klukkan 19:40 í kvöld þegar sjónvarpsstöðvarnar Skjár Einn, Stöð 2 og Sjónvarpið senda allar út þennan söfnunarþátt til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Asíu. Vilhelm Anton Jónsson er einn stjórnenda þáttarins en með honum verða þau Gísli Marteinn frá Sjónvarpinu og Brynhildur frá Stöð 2. "Í þættinum verður fullt af tónlistarmönnum og þekktu og skemmtilegu fólki sem kemur fram. Sigur Rós mun taka nýtt lag, strákarnir í 70 mínútum verða með innslag, Stuðmenn koma fram auk þess sem Bubbi og Björgvin Halldórsson taka lagið saman." Villi sér meðal annars um þann hluta þáttarins þegar frægir munir verða boðnir upp. "Á uppboðinu er árituð treyja frá Eiði Smára, hatturinn hans Dúdda sem varð frægur í myndinni Með Allt á Hreinu, teinóttu jakkafötin hans Björgólfs, Bjarkar-svanakjóllinn sem Ólafía Hrönn klæddist í áramótaskaupinu, frakkinn sem Pálmi Gunnars klæddist í undankeppni Eurovision á Rúv þegar hann flutti Gleðibankann í fyrsta sinn og gítarinn hans Bubba sem hann notaði þegar hann samdi lögin á plötunni Sögur af Landi." Uppboðið er nú þegar farið í gang og getur fólk hringt í síma: 847-0060 til þess að bjóða í hlut. Lágmarksupphæð er hundrað þúsund. "Einnig munum við tala við fólk sem var úti í Asíu þegar hörmungarnar dundu yfir. Það verður svo nóg af óvæntum uppákomum og þetta verður umfram allt skemmtilegur þáttur, það er gaman að hjálpa!" Í þættinum gefst landsmönnum kostur á að hringja í söfnunarsíma og verður fénu varið til neyðaraðstoðar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum á næstu árum.
Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira