Listin er að ætla sér ekki um of 14. janúar 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt úrskurð Skipulagsstofnunar um að mat á umhverfisáhrifum sem gert var fyrir álver sem Norsk Hydro hugðist reisa gilti einnig fyrir álver Alcoa. Það var Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrverandi ráðherra, sem kærði úrskurðinn og á hans sjónarmið hafa dómstólar nú fallist. "Ekki gat ég vitað neitt með neinni vissu í þeim efnum, það er náttúrlega aldrei þegar maður fer með mál fyrir dómstóla," svarar Hjörleifur aðspurður hvort hann hafi verið sannfærður um að héraðsdómur dæmdi honum í vil. "Ég taldi mig hins vegar hafa gott mál að flytja og lögmaður minn var sama sinnis." Tímamótadómur Þetta er í fyrsta sinn sem dómstólar snúa við stjórnvaldsákvörðun í þessum málaflokki með jafn afgerandi hætti þótt áður hafi þeir gert athugasemdir við ákveðna þætti Kárahnjúkavirkjunar. "Þetta er tímamótadómur," segir Hjörleifur því hróðugur. Búið er að áfrýja dómnum til Hæstaréttar en að sögn Hjörleifs þarf Fjarðaál að undirgangast nýtt umhverfismat. Það ferli getur tekið nokkra mánuði. "Ég skal ekki fullyrða um stöðu þessa starfsleyfis sem var gefið út í mars í fyrra en það er alveg ljóst að það gildir ekki í reynd úr þessu, það er ekki virkt sem slíkt fyrst það þarf að gera nýtt mat ef þessi dómur stendur." Hjörleifur býst við að dómurinn blási umhverfisverndarsinnum baráttuaanda í brjóst. "Það er stór hópur manna sem hefur verið í mjög virku andófi gegn þessum framkvæmdum af sannfæringu og staðið sig vel í þeim efnum. Allur þessi málarekstur er hins vegar byggður á mjög gildum rökum, tilfinningar einar saman nægja ekki þótt þær séu góðar og gildar sem slíkar." Nákvæmur eða smámunasamur? Hins vegar er ekki víst hvort Austfirðingar séu jafn ánægðir með þessar lyktir málsins. Hjörleifur telur reyndar að stuðningur íbúa svæðisins við stóriðju sé ekki eins mikill og stundum er látið í veðri vaka. "Það sem hefur verið tóngefandi í þessu er að mikill meirihluti sveitarstjórnarmanna hefur tekið undir með stjórnvöldum og haft að því er virðist trú á því að þetta færi Austurlandi gósentíð sem ég hef ekki sannfæringu fyrir," segir hann en játar þó að ekki hafi allir kunnað honum þakkir fyrir baráttu sína. "Auðvitað koma alltaf einhverjar tilfinningar inn í þetta, það hefur engin áhrif á mig í afstöðu minni til fólks eða umgengni við það. Ég hef ekki orðið fyrir ónotum eða hótunum nema í fáum tilvikum, en auðvitað hefur það borið við. Það gerist í hita leiksins, því miður." Hjörleifur er þekktur fyrir að vera fastur fyrir og vinna mál sín af stakri nákvæmni, sem sumir kalla reyndar þrjósku og smámunasemi. Hjörleifur er tregur til að leggja mat á það. "Nú er það ekki rétt að vera dómari í eigin sök. Viðhorf mitt og nálgun er þannig að ég reyni að fá gleggsta sýn yfir mál sem ég er að fást við. Margt smátt gerir eitt stórt og þú getur kannski ekki alveg vitað fyrirfram hvað skiptir mestu í tilteknu máli. Þannig að það hefur gildi að gefa því sem virðist við fyrstu sýn aukaatriði einnig gaum. Kannski er þetta kallað smámunasemi en þetta er nú mín vinnuaðferð." Mörg járn í eldinum Næstu skref í málinu verða að undirbúa það fyrir Hæstarétt og bregðast við greinargerðum þeirra sem áfrýja. "Þetta er hins vegar algert hliðarmál í mínum verkahring, ég er með mörg járn í eldinum," segir Hjörleifur en hann vinnur þessa dagana að ritun tveggja bóka. Í vor kemur út Árbók Ferðafélags Íslands, þar er fjallað um Austfirði frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar en hitt verkið sem þessi hamhleypa er með í smíðum er um Hallormsstað og nágrenni en þar er Hjörleifur uppalinn. "Það er ekki skortur á viðfangsefnum, ég sé ekki út úr því. Það er hins vegar listin að ætla sér ekki um of."
Innlent Menning Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira