Skrifað undir viljayfirlýsingu um listdanskennslu 1. desember 2005 15:13
Í dag var undirrituð viljayfirlýsing milli menntamálaráðuneytis, Menntaskólans við Hamrahlíð og Dansmenntar ehf. um samstarf um listdansnámá framhaldsskólastigi.Dansmennt tekur því við hlutverki Listdansskóla Íslands sem lagður verður niður í vor. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir aðMenntaskólinn við Hamrahlíð munifrá upphafinæstaskólaárs bjóða nám álistnámsbraut til stúdentsprófs. Menntaskólinn mun gera þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi skóla á sviði listdansnáms um að þeir annist kennslu nemenda samkvæmt námskrá. Einnig mun menntamálaráðuneytið beita sér fyrir því að aðrir skólar á framhaldsskólastigi geti boðið áfanga í listdansi ívali og er það stefna ráðuneytisins að þeir skólar, sem það gera, muni gera þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi skóla um kennslu samkvæmt námskrá. Dansmennt ehf. mun starfrækja skólann í núverandi húsnæði Listdansskóla Íslands að Engjateigi og hefur gert um það samkomulag við eiganda húsnæðisins. Að félaginu standa starfsmenn við Listdansskóla Íslands , þær Ástrós Gunnarsdóttir og Lauren Hauser . Í tilkynningunni kemur fram að Dansmennt ehf. hyggist bjóða kennurum við Listdansskóla Íslands störf við skólann eftir því sem rekstrarlegar forsendur leyfa. Menntamálaráðuneytið mun gera sérstakan samning til þriggja ára við Dansmennt ehf. um námsframboð til að tryggja að námsframvindu þeirra sem nústunda nám við Listdansskóla Íslands verði ekki raskað og að boðið verði upp á nám við hæfi fyrir nemendur skólans á framhaldsskólastigi. Þá segir enn fremur í tilkynningunni að þeir aðilar sem að viljayfirlýsingunni standihyggist vinna saman ásamt foreldrum barna sem leggja stund á listnám, sem og öðrum þeim sem viljatryggja að í boði sé metnaðarfullt nám í listdansi og sinna uppbygginguþess af kostgæfni.
Fréttir Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira