Hugmyndin kviknaði í Hogwart-skólanum 1. desember 2005 11:00 Alexander og félagar koma höndum yfir galdrabók sem flytur þá yfir í heim töfra og galdra. Brúðurnar eru sambland hand - og strengjabrúða og voru hannaðar sérstaklega fyrir jóladagatalið.
Í kvöld hefst nýtt jóladagatal á Stöð 2 sem ber heitið Galdrabókin. Leikstjóri þess er Inga Lísa Middleton og höfundur tónlistar er Margrét Örnólfsdóttir en gefinn verður út geisladiskur með tónlistinni. Þá verður auðvitað gefið út dagatal en það verður að borðspili þegar síðasti glugginn hefur verið opnaður 24.desember og ætti því að stytta yngstu kynslóðinni stundirnar þegar hún bíður eftir jólunum. Bernd Ogordnik hannar brúðurnar en hann er jafnframt yfirbrúðustjórnandi. Galdrabókin fjallar um ævintýri Alexenders sem kemst yfir bók sem flytur hann yfir í heim töfra og galdra. "Við erum eiginlega búin að vera í jólaskapi í tvö ár," segir Inga Lísa og hlær. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikstjórinn kemur að gerð jóladagatals því hún leikstýrði Klæng sniðuga sem var á dagskrá RÚV árið 1997 og var endursýnt 2004. "Mér fannst þetta format skemmtilegt þá og vildi vinna við það aftur," útskýrir leikstjórinn þegar hún er spurð af hverju hún sé að gera jóladagatal á ný. "Ég kom síðan að máli við Margréti Örnólfsdóttur í janúar 2004 og við fórum að vinna að þessu saman," bætir hún við. Hugmyndin að Galdrabókinni kviknaði í kirkju á Englandi þar sem gangasenur úr Hogwart-skólanum í Harry Potter myndunum voru teknar. "Mig langaði til að gera eitthvað sem tengdist töfrum og göldrum og hugmyndin að Galdrabókinni dundi yfir," segir Inga Lísa en meðal þeirra kosta sem bókin býr yfir er að hún svarar öllum spurningum þess sem ræður yfir henni. Brúðurnar sem koma fyrir í jóladagatalinu eru mjög sérstakar. "Bernd hannaði nýja gerð af brúðum en þær eru sambland handa - og strengjabrúða," útskýrir Inga Lísa. "Það eru strengir inni í brúðunum sem stjórna andlitshreyfingunum en það verður til þess að leikur þeirra er mjög lifandi," bætir hún við. Ogrodnik stjórnar sjálfur hluta brúðanna en hafði sér til aðstoðar danska, norska og íslenska brúðustjórnendur. Hvort Galdrabókin yrði endursýnd næstu átta árin sagðist Inga hafa fullt af hugmyndum að nýjum ævintýrum sem gætu orðið að nýjum jóladagatölum í framtíðinni.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira