Lífið

Boltabullur á Bretlandi

Matt Buckner. Eftir að hafa verið rekinn úr Harvard flýr Buckner til Englands þar sem hann kemst í kynni við boltabullur.
Matt Buckner. Eftir að hafa verið rekinn úr Harvard flýr Buckner til Englands þar sem hann kemst í kynni við boltabullur.

Fótboltabullur hafa sem betur fer ekki náð hingað til lands að einhverju marki. Þetta er hins vegar vandamál sem lengi hefur loðað við ensku knattspyrnuna en úrvalsdeildin hefur barist ötullega gagnvart þessum hópi sem enn eru þó með lífsmarki í neðri deildunum.

Kvikmyndin Green Street Hooligans segir frá Matt Buckner en hann er rekinn frá Harvard fyrir brot sem hann framdi ekki. Buckner leitar huggunar á Englandi hjá systur sinni en kemst fljótlega í kynni við heldur vafasaman hóp boltabullna sem sem þrífast á ótta og ógn.

Það er Elijah Wood sem leikur aðalhlutverkið í þessari mynd en hann er hvað þekktastur sem Fróði í Hringadrottinssögu. Það er óhætt hægt að segja að það er fátt sem minnir á ævintýraheim Tolkiens í þessari mynd um heim þjakaðan af ofbeldi og vesæld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.