Háskólinn fær skammir 8. desember 2005 05:00 Tryggvi Gunnarsson Umboðsmaður Alþingis vill að Háskólinn endurskoði niðurfellingu fastrar yfirvinnu sérfræðings.
Umboðsmaður Alþingis hefur beint þeim tilmælum til Háskóla Íslands að fjallað verði á nýjan leik um mál sérfræðings, sem starfar hjá Háskólanum, vegna einhliða ákvörðunar stofnunarinnar um að fella niður fasta yfirvinnu hjá honum. Háskólinn skuli bregðast við með þessum hætti óski sérfræðingurinn þess. Ella geti það orðið hlutverk dómstóla að leysa endanlega úr þeim ágreiningi sem uppi sé. Reglurnar sem hafi leitt til niðurfellingar yfirvinnunnar séu óskýrar. Málið er þannig til komið að sérfræðingur hjá einni af stofnunum Háskólans kvartaði yfir því að ráðningarkjörum hans hefði heimildarlaust verið breytt með einhliða niðurfellingu fastrar yfirvinnu sem samið hefði verið um þegar hann var ráðinn til stofnunarinnar. Hafði hluti þeirrar yfirvinnu verið felldur inn í dagvinnulaun í kjölfar kjarasamninga milli ríkisins og Félags háskólakennara árið 1997 og hafði maðurinn ritaði undir yfirlýsingu til samþykkis þess 22. júlí 1998. Maðurinn hafði hins vegar áfram fengið greiddar ellefu yfirvinnustundir á mánuði og voru gerðir samningar við hann um slíkar greiðslur á árunum 2002 og 2003. Á árinu 2004 leitaði hann eftir því að yfirvinnusamningur hans yrði endurnýjaður. Hafnaði stofnunin því á þeirri forsendu að slíka yfirvinnusamninga yrði að fjármagna með sértekjum einstakra verkefnastjóra og yrðu þeir ekki greiddir af almennu rekstrarfé stofnunarinnar eins og gert hafði verið í tilviki hans. Var það afstaða Háskóla Íslands í málinu að réttur sérfræðingsins samkvæmt upphaflegu samkomulagi um yfirvinnugreiðslur hefði fallið niður.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Fleiri fréttir D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira