Rómantík og ribbaldar 8. desember 2005 12:45 Charlie og Vic. Lögfræðingurinn Charlie og aðstoðarmaður hans Vic svíkja stórfé út úr glæpaforingja. Hlutirnir fara þó á annan veg en þeir ætluðu.
Það styttist enn frekar í stórmyndina King Kong sem frumsýnd verður miðvikudaginn 14. desember. Fram að því ætlar Reese Witherspoon að stytta okkur stundirnar með því að ganga aftur og þeir John Cusack og Billy Bob Thornton komast í hann krappan þegar þeir reyna svíkja fé út úr glæpaforingja í Wichita. Það er Harold Ramis sem leikstýrir Ice Harvest en hann er ef til vill þekktastur fyrir hlutverk sitt sem dr. Egon Spegler í Draugabönum sem gerðu allt vitlaust á fyrri hluta níunda áratugarins. Þó að hann bregði sér öðru hvoru fram fyrir myndavélarnar hefur hann að mestu leyti helgað sig skrifum og leikstjórn. Viðfangsefni þessarar nýjustu myndar hans er lögfræðingurinn Charlie Aglist í Wichita sem hefur haft gott upp úr því að verja óþokka borgarinnar. Hann ákveður að gefa sjálfum sér nokkuð veglega jólagjöf frá aðalglæpaforingjanum, Bill Guerrard. Ásamt aðstoðarmanni sínum, Vic Cavanaugh, stelur hann rúmum tveimur miljónum dala. Charlie hyggst eyða sínum hluta með strippbúllueigandanum Renetu en hlutirnir fara á annan veg en hann hafði í hyggju. @Mynd -FoMed 6,5p CP:David og Elizabeth Piparsveininum David bregður í brún þegar hann verður þess var að fyrrverandi eigandi íbúðar hans hefur ekki alveg gefið upp öndina. Það eru John Cusack, Billy Bob Thornton, Oliver Platt og Connie Nielsen sem fara með aðalhlutverkið í þessari gamansömu jólamynd. Randy Quaid bregður sér í hlutverk illmennisins en hann er um þessar mundir að leika í Milos Forman myndinni Goya's Ghosts. Það kom eflaust mörgum á óvart þegar bandaríska leikkonan Reese Witherspoon var valin til að leika June Carter í Walk the Line. Áður en Reese tók að sér hlutverkið hafði hún unnið sér það helst til frægðar að leika hina ofurheimsku Elle Woods í Legally Blonde myndunum. Myndinni var strax spáð mikilli velgengni bæði í miðasölu en ekki síst á óskarnum því Johnny Cash er með eindæmum vinsæll í Bandaríkjunum og látnir tónlistarmenn hafa alltaf trekkt vel í kvikmyndahúsum þar vestra. Frammistaða Reese í myndinni hefur komið mörgum á óvart og vakið mikla athygli en henni hefur verið spáð óskarstilnefningu. Leikkonan er þó á kunnuglegum slóðum í Just Like Heaven en þar er á ferðinni rómantísk gamanmynd. Á móti henni leikur Mark Ruffalo en hann er góðri leið með að verða næsti Hollywood-sjarmörinn. Hjúkrunarkonan Elizabeth hefur engan tíma fyrir sjálfa sig heldur sekkur sér niður í vinnuna. Það kemur hins vegar babb í bátinn þegar hún deyr í bílslysi á leiðinni heim. Inn íbúðina hennar flytur piparsveinninn David sem að öllu jöfnu ætti að vera einn í henni. Elizabeth hefur þó ekki gefist alveg upp fyrir manninum með ljáinn heldur telur sig vera á lífi. Piparsveininum til mikils ama gefur hún sig ekki en þegar þau fara að kynnast nánar er ljóst að ástin nær út fyrir gröf og dauða.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira