Treflunum steypt af stóli í nýjum þætti á Sirkus 8. desember 2005 08:00 Egill Gilzenegger verður með félögum sínum af heimasíðunni kallarnir.is með nýjan þátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus þar sem þeir gefa landsþekktum treflum yfirhalningu.
Sjónvarpsstöðin Sirkus auglýsti á dögunum eftir hugmyndum að íslenskum sjónvarpsþáttum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en stöðinni bárust 140 hugmyndir frá fólki á öllum aldri í allskonar formi. Einn þáttur á þó eflaust eftir að vekja mikla athygli þegar hann birtist á skjánum en í upphafi næsta árs mun Egill Gilzenegger ásamt félögum sínum af heimasíðunni kallarnir.is, þeim Hjöbba Ká og Partý Hanza, vera með þátt sem á sér engan líkan að sögn kraftajötunsins. "Þetta verður skemmtilegasti sjónvarpsþáttur sögunnar," lýsir hann kokhraustur yfir en viðurkennir um leið að ekkert fast form sé komið á þáttinn. "Við ætlum bara að hafa hann fyndinn og skemmtilegan," segir hann en þættinum hefur enn ekki verið gefið nafn. Egill upplýsir að grunnurinn verði yfirhalning eða "make - over". "Við ætlum að fá til okkar landsþekkta trefla og umbreyta þeim," útskýrir hann en fyrir þá sem ekki skilja hugtakið "trefill" þá þýðir það náungi með krullur sem hvorki stundar líkamsrækt af neinu viti né er brúnn. "Við ætlum líka að vera með stutta leikþætti inná milli," bætir Egill við en hann segir að þeir félagar hafi horft á Svínasúpuna og Stelpurnar og gert sér grein fyrir því að þeir gætu gert miklu betur. Egill segir að það sé löngu komin tími fyrir hnakkana að taka við af treflunum sem hafi staðið við stjórnvölin alltof lengi í íslensku sjónvarpi. "Það er að eiga sér stað hnakkavæðing enda erum við miklu myndarlegri og fyndnari en þeir ,"segir Egill og bendir á brúnkuklútagjöf Íslandsbanka sem besta dæmið um þessa byltingu. Egill segir að þrátt fyrir mikla karlmennsku engin kvennfyrirlitning í þáttunum. "Við ætlum meðal annars að fá til okkar alvöru dansara sem kenna karlmönnum að dilla rassinum og fá ráðleggingar hvað varðar húðina." Það verður því í nógu að snúast hjá Agli. Biblían hans kemur fyrir almenningssjónir í ársbyrjun og útilokar hann ekki að hún komi eitthvað við sögu í sjónvarpinu. "Þeir sem verða teknir í yfirhalningu verða að sjálfsögðu að læra hana frá a - ö."
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Sjá meira