Síðasti veturinn á íslandi 16. febrúar 2005 00:01
Tökur á nýrri kvikmynd frá leikstjóranum Larry Fessenden munu fara fram á Íslandi. Fessenden er mikilsmetinn leikstjóri af aðdáendum indie-hryllingsmynda og hefur honum meðal annars verið líkt við leikstjórann M. Night Shyamalan. Hann hefur einnig leikið sjálfur í nokkrum myndum og þar á meðal Bringing Out The Dead og Hamlet. "Ástæðan fyrir því að myndin er tekin upp hérlendis er sú að hún á að gerast á Alaska og þeir leituðu lengi að landslagi sem væri hentugt og fundu þar hér," segir Skúli Malnquist annar eigenda Zik Zak kvikmynda sem framleiða myndina. Aðspurður hvort eitthvað verði um fræga leikara í myndinni tekur hann fram að myndin sé ekki týpísk Hollywood mynd og að sá eini sem fólk gæti kannast við sé Ron Perlman en hann hefur meðal annars leikið í myndum eins og Hellboy, Name Of The Rose, City Of Lost Children, Enemy At The Gates, Alien Resurrection, Quest For Fire og Star Trek: Nemesis. Myndin er einskonar indie spennutryllir og fjallar um hóp vísindamanna sem ferðast til Alaska í leit að olíuuppsprettum. Veðráttan á snævi þöktu landinu fer að gera fólkinu lífið leitt og endar með því að flugvél brotlendir á dularfullan hátt. Tveir menn fara að leita að hjálp en á leið sinni fer þeim að líða illa og eru ekki vissir hvort að hjörð af ósýnilegum draugum séu að herja á þá eða hvort þeir séu að verða geðveikir. Hvað sem það er sem kemur fyrir þá á leiðinni þá snúa þeir aldrei aftur. Að sögn skúla mun enginn íslenskur leikari leika í myndinni en allt starfsfólk fyrir utan leikstjóra er íslenskt. Tökur fara fram bæði á Mývatni og í stúdíói í Reykjavík og hefjast þær þann 6. mars næstkomandi. "Enginn íslenskur leikari mun leika í myndinni en allt starfsfólk fyrir utan leikstjóra er íslenskt. Tökur fara fram bæði á Mývatni og í stúdíói í Reykjavík og hefjast þær þann 6. mars."
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Sjá meira