Líkleg valdaskipti í Noregi 30. ágúst 2005 00:01
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra Noregs. Samkvæmt nýrri könnun stefnir í stórsigur vinstri flokkanna í þingkosningunum í Noregi eftir tvær vikur. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Norska ríkissjónvarpið og norska Dagblaðið er útlit fyrir að vinstri flokkarniar fái 90 þingsæti af 169 á norska Stórþinginu. Könnunin sýnir að þrátt fyrir að Verkamannaflokkurinn tapi lítillega fylgi frá síðustu könnun ætla langflestir að kjósa flokkinn, sem nýtur nú tæplega 31 prósents fylgis. Norski Framfaraflokkurinn, flokkur Carls I. Hagens, bætir aðeins við sig og nýtur næstmests fylgis samkvæmt könnuninni, en um nítján af hundaði segjast ætla að kjósa hann. Hægri flokkurinn, sem einnig bætir við sig fylgi, er í þriðja sæti með um 15 prósent og Sósíalíski vinstriflokkurinn er með rúmlega 13 prósenta fylgi. Kristilegi þjóðarflokkurinn, flokkur Kjells Magnes Bondeviks forsætisráðherra, er einungis með um átta prósenta fylgi, líkt og Miðflokkurinn, en Kristilegir tapa lítillega fylgi frá síðustu könnun og þeir hafa tapað um þriðjungi af fylgi flokksins frá þingkosningunum í Noregi árið 2001. Vinstri flokkurinn er með minnsta fylgið, samkvæmt könnuninni nú, eða aðeins 3,3 prósent. Þetta þýðir að vinstri flokkarnir eru samanlagt með nægilegt fylgi til að mynda meirihlutaríkisstjórn. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir að Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra Noregs og taki við embættinu af Bondevik.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Sjá meira