55 látnir af völdum Katrínar 30. ágúst 2005 00:01
Ekki færri en 55 hafa látist af völdum fellibylsins Katrínar sem skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Flestir þeirra sem létust bjuggu í sýslum innar í landinu en í New Orleans borg létust einungis þrír enda hafði gríðarlegur viðbúnaður verið þar. Enn hefur ekki tekist að komast að nokkrum íbúðarhverfum sökum vatnselgs og óttast er að einhverjir kunni að hafa látið lífið. Í gær var meira en tvö hundruð manns bjargað af húsþökum í borginni. Meira en milljón manns er án rafmagns á suðurströnd Bandaríkjanna og að sögn yfirvalda gætu liðið allt að tveir mánuðir þar til rafmagn kemst á aftur. Hlutar New Orleans eru enn á kafi og eyðileggingin er gríðarleg. Rafmagnslínur hafa eyðilagst, stór pálmatré liggja á víð og dreif og bílar fljóta eins og hráviði um alla borg. Fjölmargar byggingar eru gjörónýtar og götur sem ekki eru á floti eru þaktar glerbrotum og öðru rusli. Þó að það sé ljóst að það muni taka marga mánuði að koma borginni almennilega af stað á nýjan leik var búist við slíkum hamförum að ekki er laust við að ákveðins léttis gæti enda hefðu hamfarirnar orðið miklu verri ef Katrín hefði ekki sveigt á síðustu stundu. Í Missisippi, Alabama og Louisiana hafa líka orðið miklar skemmdir af völdum Katrínar þó að dregið hafi verulega úr krafti hennar þegar þangað var komið. Þar hefur verið lýst yfir neyðarástandi enda liggja samgöngur víða niðri og hættan af völdum snarpra vindhviða ekki enn liðin að fullu hjá.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira