Allsber út um allan bæ 18. febrúar 2005 00:01
Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir DV í dag. Að vanda fjallar blaðið ítarlega um menningar- og skemmtanalífið, tónlistina og bíómyndirnar. Forsíðuna að þessu sinni prýðir Erna Þorbjörg Einarsdóttir. Hún fór allsber út um allan bæ, í strætó, klippingu, á barinn, í skólann og sjoppuna. Erna opnar ljósmyndasýningu í Gallerí Tukt í kvöld. "Hugmyndin kviknaði þegar ég var að vinna að myndinni Mónu Lísurnar og musteri hórunnar með leikfélagi iðnskólanna í fyrra. Okkur langaði ekki að setja upp einhverja Versló-sýningu og ákváðum því að gera kvikmynd. Böðvar Bjarki leikstjóri vildi síðan hafa okkur leikkonurnar berar að ofan í myndinni og þegar hann bað um það voru flestar ekki til í það. Ég skildi það ekki. Var meira en lítið til í þetta," segir Erna Þorbjörg Einarsdóttir, sem opnar sýninguna Ber út um allan bæ í Gallerí Tukt í Hinu húsinu í dag. Kynlíf selur Böðvar Bjarki vildi fá stelpurnar úr fyrir myndskeiðið sem síðar varð frægt út af Hákoni Eydal. Hann lék þar hlutverk forsætisráðherrans en Erna var ein af brjóstaberu Mónunum. "Upp blossaði gamla femínistapælingin að nektin væri bara til að selja myndina, "sex sells". Það væri eini tilgangurinn fyrir þessu. Mér fannst það ekki. Ég skildi alveg hvað hann var að fara. Á endanum fórum við auðvitað allar úr en það sat í mér hversu mikið mál þetta var. Við erum öll eins." Tilgangur sýningarinnar segir Erna vera að athuga hvort hún geti þetta. "Fótað mig á þessum vettvangi. Helst myndi ég vilja starfa við myndlist, kvikmyndir, ljósmyndun og leik. Þetta er allt ótrúlega gaman." Sýning Ernu átti upphaflega að vera í lok október. Hún segist hafa skráð sig fyrir tilviljun og ekki vitað hvað hún ætlaði að gera þannig að gálgafresturinn var vel þeginn. Þá kviknaði hugmyndin og Erna fann ljósmyndara til að vinna með. "Svo hætti hann við í síðustu viku. Þá fékk ég símann hjá Óskari ljósmyndara sem sló til. Við höfðum bara tvo daga til að taka fimmtán myndir þannig að þetta var rosaleg keyrsla. Ég var með ákveðnar staðsetningar í huga og það var oft mjög kalt að standa nakin úti í kuldanum ..." Afganginn af viðtalinu við Ernu má lesa í Fókus í dag. Þar er auðvitað af nógu að taka, nokkrir ungir elskendur spjalla um getnaðarvarnir og kynlífið, Strákunum á Stöð 2 var fylgt í einn dag og úr varð sprenghlægileg myndasaga, fjallað er um heitasta bandið í Bretlandi, Bloc Party, og farið í saumana á nýjustu gæðamyndunum í bíó, Closer og Ray.
Menning Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira