Innlent

Flugvél seinkaði vegna eiturefna

Tíu sextán lítra tunnur af skordýraeitri voru í flugvél Icelandair sem lenti á Keflavíkurflugvelli um sexleytið í gærmorgun. Vélin kom frá Minneapolis og átti að halda áfram beint til London en tafðist til hádegis. "Þegar verið var að afhlaða vélina kom í ljós að lekið hafði úr einni tunnunni," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða. "Efnið er í flokki eiturefna og samkvæmt reglugerða um flutning á slíkum efnum var unnið samkvæmt viðbúnaðaráætlun lögreglu. Svæðið var einangrað og eiturefnasérfræðingar kallaðir til. Þeir starfsmenn sem komust í snertingu við efnið voru sendir í læknisskoðun."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×