Innlent

Fjölmenni á hátíðahöldum í miðbæ

Mikið fjölmenni kom saman í miðborg Reykjavíkur í dag til fagna baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Að sögn lögreglu tóku um þúsund manns þátt í göngu frá Skólavörðuholti sem hófst klukkan eitt, en gengið var undir lúðrablæstri tveggja lúðrasveita niður á Ingólfstog þar sem verkalýðsleiðtogar fluttu ávörp og boðið var upp á tónlist. Þar mun mikill fjöldi hafa verið og segir lögregla allt hafa farið vel fram. Þá höfðu um 2300 manns lagt leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um klukkan fjögur, en þar voru Iðnnemar, Bandalag íslenskra námsmanna og Samband íslenskra námsmanna erlendis með hátíð og ókeypis í garðinn. Einn réttur - ekkert svindl var yfirskrift hátíðahaldanna í dag og er þar vísað til ólöglegs vinnuafls og réttinda sem tryggð eiga að vera í samningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×