Tollvörður grunaður um þjófnað 2. desember 2005 08:00
Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú hugsanlega aðild tollvarðar að þjófnaðarmáli. Fjórir einstaklingar sem störfuðu hjá Samskipum urðu þá uppvísir að því að stela áfengi sem geymt var í vöruhúsi fyrir tollskyldan varning sem átti að fara til förgunar. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins leikur grunur á að umræddur tollvörður hafi tekið hluta af áfenginu. Fólkið sem um ræðir vann hjá Samskipum og dótturfyrirtæki þess. Það hafði aðgang að vöruhúsi, þar sem tollskyldur varningur er geymdur, mismikinn þó. Þegar grunur vaknaði um að áfengið hefði ekki skilað sér allt til förgunar höfðu yfirmenn viðkomandi sviðs Samskipa samband við tollyfirvöld og lögreglu um rannsókn málsins. Starfsmennirnir fjórir reyndust hafa tekið áfengi í mismiklum mæli. Snorri Olsen tollstjóri segir rétt að hafa það í huga þegar eitthvað af þessum toga gerist að menn séu saklausir þar til annað komi í ljós. "Það er mjög eðlilegt að svona mál séu skoðuð af okkar hálfu, út frá okkar sjónarmiðum um öryggiseftirlit, hvort eitthvað bjáti á í okkar framkvæmd. Þá getur auðvitað komið í ljós að eitthvað sé ekki með felldu. Það fer síðan eftir því hvað sannast í svona máli hver viðbrögðin eru," segir hann og kveður brot í starfi vera meðhöndluð samkvæmt gildandi starfsmannalögum opinberra stofnana. Viðbrögð geti verið allt frá tiltali eða skýringu á reglum til brottvikningar samkvæmt lögbundinni framkvæmd. Snorri sagði að viðkomandi tollverði hefði ekki verið vikið úr starfi, enda stæði rannsóknin enn yfir. Ásgeir Karlsson, yfirlögregluþjónn fíkniefnadeildar lögreglunar, kvaðst staðfesta að þetta hefði gerst en sagði jafnframt að ekki yrðu gefnar efnislegar upplýsingar um þetta mál meðan rannsókn á því stæði yfir.
Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Sjá meira