Tilkynnir vanhæfi bréflega 2. desember 2005 06:45
Bogi Nilsson ríkissaksóknari hefur með bréfi til dómsmálaráðherra, dagsettu 24. nóvember, sagt sig formlega frá saksókn í þeim átta ákæruliðum Baugsmálsins sem enn eru til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafði áður þennan sama dag óskað eftir því bréflega að Bogi upplýsti og staðfesti formlega að hann hefði vikið sæti í umræddum hluta málsins. Bogi segir í svarbréfi sínu til dómsmálaráðherra sama dag að vanhæfisástæður sínar eigi við ákæruliðina átta ekkert síður en hina 32 sem vísað var frá dómi. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að Bogi hefði aldrei sagt sig formlega frá meðferð ákæruliðanna átta. Af þeim sökum hefði ekki verið formlega rétt staðið að því að setja Sigurð Tómas Magnússon saksóknara í þeim hluta málsins. Sigurður kærði þessa niðurstöðu til Hæstaréttar og er búist við niðurstöðu dómsins á næstu dögum. Bréfaskrifin fela í sér að Sigurður Tómas hlýtur nú formlega að teljast bær til þess að fjalla um ákæruliðina átta. Taki hann sæti hafa verjendur lýst því að þeir muni krefjast dómsúrskurðar um hæfi dómsmálaráðherra til að skipa Sigurð.
Innlent Mest lesið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Fylgið ekki mælst meira síðan fyrir hrun Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Innlent Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Erlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent Fjölskyldur lýsa martraðarkenndri bið Erlent Dularfullt bleikt slím veldur ugg á Tasmaníu Erlent „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Innlent Fleiri fréttir Krakkarnir beðið um að halda áfram heimsóknum á Hrafnistu Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Hótaði að nauðga manni og skallaði annan vegna húðlitar Stærðfræðikennarinn Stein sækist eftir fjórða sæti Langar raðir á Sorpu eftir hátíðarnar Fylgið ekki mælst meira síðan fyrir hrun Rýnt í stöðuna í Venesúela og Sjálfstæðisflokkurinn á flugi Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Dóra Björt vill þriðja eða fjórða sæti Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Sjá meira