Við vorum svangir 2. desember 2005 07:00
Vinnumarkaður Fimm Brasilíumenn, sem komu hingað til lands í sumar ásamt fleirum til að setja upp gifsveggi, sögðu í vitnaleiðslum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í byrjun vikunnar að þeim hefði verið lofað 120 þúsund krónum á mánuði fyrir fimm daga vinnuviku, 500 krónum á tímann í aukavinnu, og húsnæði. Einn átti líka að fá hádegismat. Mennirnir sögðu að Magnús Guðmundsson, eigandi Nýgifs, hefði ekki staðið við orð sín. Hann hefði aldrei borgað þeim á réttum tíma og aldrei heil mánaðarlaun í einu. Hann hefði borgað þeim 5-10 þúsund krónur öðru hvoru og einum mannanna þrjátíu þúsund og fimmtíu þúsund. Einn þeirra kvaðst hafa fengið 810 evrur, rúmlega sextíu þúsund krónur, kvöldið áður en mennirnir áttu að halda heim. Magnús hefði látið þá vinna 167 tíma samtals hvern án þess að greiða fyrir það. Hann "reddaði okkur stundum einhverjum smá pening," sagði einn mannanna fyrir Héraðsdómi. Mennirnir sögðust hafa gert athugasemdir við Magnús út af laununum og hann hefði sagt þeim að hafa ekki áhyggjur. "Við stoppuðum meðal annars vinnuna í einn dag, því við áttum ekkert að borða," sagði einn mannanna og tveir sögðu að Magnús hefði þá hótað að senda lögregluna á þá og senda þá úr landi allslausa. Einn sagði: "Við vorum svöng, við vorum átta saman á vinnustað með eitt klósett." Brasilíumennirnir sögðu að þeim hefði verið lofað að búa fjórir saman í íbúð en þeir hefðu búið átta á sama stað. Þeir hefðu unnið fyrir ÍAV, fyrirtæki á Akranesi og líka heima hjá verkfræðingi, vini Magnúsar. Í vitnaleiðslunum kemur fram að ekki hafi verið gerður skriflegur ráðningarsamningur við mennina og þeir ekki fengið launaseðla. Eitt sinn hafi þeir verið látnir skrifa undir óútfyllt blað og sagt að það væri til að þeir fengju dvalarleyfi. Magnús hefur sagt Brasilíumennina hafa valdið sér tjóni með óvönduðum vinnubrögðum. Mennirnir sögðu fyrir Héraðsdómi að þeir hefðu strax bent honum á að hráefnið væri ekki nógu gott, gifsið myndi ekki festast á veggi og loft nema notað væri límið Bianco til að festa það.
Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira