Kristinn gagnrýndi Davíð 7. desember 2005 22:17
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður framsóknarmanna, gagnrýndi yfirlýsingar Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um Íbúðalánasjóð harðlega í lok fjárlagaumræðunnar í nótt. Kristinn sagði að bankastjórinn talaði eins og stjórnmálamaður og spurði hvort búast mætti við því að hann færi að gefa út línu varðandi aðra þætti viðskiptalífsins. Kristinn H. Gunnarsson var síðastur á mælendaskrá um fjárlagafrumvarpið en þá var komið fast að miðnætti. Hann brást við ummælum Davíðs Oddssonar á viðskiptaþingi á mánudag þar sem Davíð sagði meðal annars að húsnæðislánakefið hefði orðið úrelt þegar þær bankarnir fóru að lána og samkeppnistaða á íbúðamarkaði gengi ekki upp meðan Íbúðalánasjóður nyti ríkisábyrgðar. Kristinn sagði eðlilegt að stjórnmálamaður hefði þessa skoðun en það væri ekki hlutverk seðlabankans að senda stjórnmálamönnum tóninn, um hvað þeir ættu að gera. Og hvernig íbúðalánakerfi eigi að þjóna landsmönnum. Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingar innti fjármálaráðherra eftir samantekt frá Ríkisábyrgðasjóði sem hann hefði fengið staðfest hjá Lánasýslu ríkisins að hefði verið send ráðuneytinu fyrir skemmstu. Árni Matthiesen fjármálaráðherra svaraði því til að hann hefði óskað upplýsinga í ráðuneytinu hvort samantektin væri þar. Hann sagði hana ekki hafa borist en hins vegar gæti það villt mönnum sýn að gengið hefði á milli ráðuneytis og stofnunarinnar drög að skýrslu sem enn væri ekki tilbúin. Kristinn brást einnig við ummælum Lúðvíks Bergvinssonar um Íbúðalánasjóð í fréttum okkar á sunnudag, þar sem hann sagði að það væri óðs manns æði að veita sjóðnum ríkisábyrgð meðan ekki lægi fyrir úttekt á fjárjagsstöðu sjóðsins né heldur að samantekt Ríkisábyrgðarsjóðs lægi fyrir. Kristinn sagði að Fjármálaeftirlitið og Ríkisendurskoðun hefðu lögum samkvæmt eftirlit með Íbúðalánasjóði og Ríkisábyrgðasjóður hefði ekkert um það að segja. Stjórnsýsluskýrsla Ríkisendurskoðunar sýndi ennfremur að sjóðurinn væri vel rekinn. Árni Matthíesen fjármálaráðherra hnyktti á því í svari sínu að skýrsla Ríkisenduskoðunar væri ekki úttekt á fjárhagsstöðu sjóðsins heldur einungis stjórnsýsluútekt. Hann sagði að þrátt fyrir að ríkisábyrgðir yrði samþykktar á fjárlögum fengi sjóðurinn þær ekki sjálfkrafa. Fjármálaráðherra hefði hinsvegar heimild til að láta sjóðinn hafa þær. Félagsmálanefnd tekur skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íbúðalánasjóð á dagskrá fjórtánda desember.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira