Íslenskir Stónsarar á Gauknum 7. desember 2005 13:15 Birgir Baldursson ætlar að tromma í anda Charlie Watts en ekki reyna að apa allt upp eftir honum því það er ekki hægt.
Hinir íslensku Stónsarar koma fram á Gauki á Stöng á morgun fimmtudag. Tilefnið er útkoma nýrrar bókar um Rolling Stones í þýðingu Birgis Baldurssonar. Er sveitin skipuð einvalaliði en þýðandinn sjálfur mun lemja húðirnar. "Þetta verður fallegt," sagði hann. "Það er smitandi ánægja milli hljómsveitameðlima," bætir hann við en sveitina skipa auk hans Björgvin Gíslason, Eðvarð Lárusson, Tómas Tómasson og Einar Rúnarsson en það er sjálfur Helgi Björns sem bregður sér í líki Mick Jagger. "Reyndar hefur honum ekki gefist tækifæri til að æfa með okkur en við rennum yfir dagskrána á fimmtudaginn," segir Birgir óhræddur en þetta er einmitt í ætt við ferlið hjá Rolling Stones sem æfa frekar lítið. "Þetta felst ekki í að apa allt "orðrétt" upp eftir þeim heldur spila frekar í anda þeirra," segir Birgir. "Það getur enginn leikið á gítar eins og Keith en það er hægt að spila í anda hans." Birgir segir að Rolling Stones hafi haft mikil áhrif á rokktónlistina og ekkert síðri en fjórmenningarnir í Bítlunum. "Þeir nálguðust tónsmíðina eins og djassinn og litu á lagasmiðar sem ramma og það væri síðan hægt að vinna eftir honum," útskýrir hann en Rolling Stones sóttu mikið í arf hinna svörtu blúsara, Motown og kántrítónlistina. "Stones flytur rokk eins og það kemur af skepnunni sjálfri." Þýðandinn segist hafa skemmt sér konunglega yfir því að þýða bókina og margt hafi komið honum á óvart. Honum finnst þó ólíklegt að hann drekki einn Jack Daniels með engiferöli, morgunmat Keith Richards, áður en hann stígur á sviðið. "Hann sagði reyndar eftir að hafa þurrkað sig upp af heróíni að allt annað væri barnaleikur," útskýrir Birgir en segist jafnframt þurfa á öllu sínu að halda ef ekki eigi að fara illa.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira