Bandaríska söngkonan Whitney Houston hefur gagnrýnt ungar söngkonur á borð við Christinu Aguilera, Beyoncé Knowles og Britney Spears fyrir að vera of ginkeyptar fyrir því að leika í auglýsingum.
Á meðan Aguilera hefur auglýst Pepsi grimmt og Knowles hefur auglýst skyndibitarisann McDonald's hefur Houston aldrei selt ímynd sína nema sem söngkona eða leikkona. "Þær eru vörumerki. Þær selja hvað sem er á meðan ég hef bara verið söng- og leikkona. Þær auglýsa allt of mikið," sagði Houston.