Dagskrárgerðarmenn breyttu Einari Áskeli í melludólg 7. desember 2005 18:00 Einar Áskell - Alfons Åberg eins og hann heitir á frummálinu. Alfons er orð yfir melludólga á dönsku og það var upphaf grínsins hjá dagskrárgerðarmönnum sænska ríkisútvarpsins.
Hæstiréttur Svíþjóðar hefur nú til umfjöllunar mál um það hvort dagskrárgerðarmenn sænska ríkisútvarpsins hafi mátt draga upp þá mynd af teiknimyndastráknum Einari Áskeli að hann sé melludólgur sem selji eiturlyf og berji eiturlyfjafíkla. Brot á höfundarréttimmÞað var Gunilla Bergström, höfundur bókanna um Einar Áskel, sem kærði dagskrárgerðarmenn útvarpsþáttarins Pippirull fyrir að breyta verki sínu. "Einar Áskell er heiðarleg manneskja," fullyrti Gunnilla á miðvikudag þegar málið var tekið fyrir í Hæstarétti. "Mér finnst ekki rétt að gera Einar Áskel að dópsala, hvað þá með mínum texta sem var ekki hugsaður í þessu samhengi, heldur fyrir börn." Málið hefur staðið yfir í ein þrjú ár en Gunilla hefur bæði tapað í þingrétti sem og hofrétti, sem er miðdómsstig í hinu almenna dómskerfi. Gunilla var þá dæmd til að greiða um eina og hálfa milljón íslenskra króna í dómskostnað. Alfons melludólgurMálið má rekja aftur til 2002 þegar Gunilla Bergström kærði dagskrárgerðarmenn Pippistrull fyrir brot á höfundarrétti þegar þeir klipptu saman brot úr leikriti um Einar Áskel og dönsku myndinni Pusher, sem fjallar um eiturlyf og ofbeldi. Einar Áskell heitir á frummálinu Alfons Åberg en á dönsku er alfons orð yfir melludólga, sem var hvatinn að gríni útvarpsmannanna. Í innslaginu selur Einar Áskell eiturlyf og lendir í slagsmálum við eiturlyfjafíkil. Dagskrárgerðarmenn Pippistrull segja að leikþáttur þeirra sé sjálfstætt verk og það megi gera grín að þekktum persónum á borð við Einar Áskel. "Þekktir höfundar verða að þola gagnrýni, skopstælingu og háð," segir lögfræðingur SR, sænska ríkisútvarpsins. Stuldur eður ei?Gunilla Bergström er þó ekki bara ósátt við að Einari Áskeli sé breytt í melludólg því hún telur að dagskrárgerðarmennirnir hafi stolið verkinu hennar þegar þeir klipptu upplestur leikarans Björns Gustafsson á upprunalegum texta úr bókinni saman við texta úr Pusher. "Ég vil fá það staðfest hversu langt má ganga í að rífa verk listamanna úr samhengi. Einhvers staðar hljóta mörkin að liggja," sagði Gunnilla. "Ég lít svo á að þeir hafi stolið verkinu mínu þegar þeir rifu það úr samhengi og klipptu saman við annan texta." Óvíst er hvenær dómur Hæstiréttar fellur en Gunilla Bergström þarf líklega að bíða í nokkrar vikur eftir úrskurðinum.
Menning Mest lesið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Sjá meira