Breskur og finnskur matur frábær 6. júlí 2005 00:01
Almenningi í Bretlandi og Finnlandi er nú í nöp við Frakkland og Ítalíu og þó sér í lagi við leiðtoga ríkjanna tveggja. Tilefnið er orð Chiracs Frakklandsforseta og Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, um að breskur og finnskur matur sé óætur. Ástandið í ríkjunum er eldfimt og stappar nærri milliríkjadeilu. Stjórnmálamenn í Bretlandi og Finnlandi hafa ekki viljað tjá sig um yfirlýsingar Berlusconis og Chiracs en leiðarahöfundar blaða hafa tekið tvímenningana á beinið. Úlfar Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur frökkum, skilur úlfúð Breta og Finna enda veit hann sem er að um fátt þykir þjóðum vænna en matinn sinn. Og hann vísar ummælum leiðtoganna tveggja út í hafsauga. "Ég hef borðað mína bestu máltíð í Bretlandi og unnið með finnskum kokkum sem eru hreinir snillingar," segir Úlfar, þar sem hann stendur yfir pottunum sínum á Þremur frökkum. Og eins og það sé ekki nóg hefur Úlfar misjafna sögu að segja af frönskum kokkum. "Ég hef orðið hungurmorða í Frakklandi því ég fann ekki nógu góðan veitingastað." Úlfar átelur Berlusconi og Chirac fyrir að hafa sagt þetta en býst helst við því að þeir hafi verið búnir að fá sér aðeins í tána þegar stóru orðin féllu. "Chirac gagnrýndi líka haggis sem er þjóðarréttur Skota. Það má ekki dæma matreiðslu heillar þjóðar út frá svona löguðu. Það er til dæmis ekki hægt að segja að það sé bara ógeðslegur matur á Íslandi af því að við höfum svið og blóðmör." David Barnwell, golfkennari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, er breskur að uppruna en hefur búið á Íslandi um árabil. Honum sárnar ekki orð Chiracs en segir þau engu að síður þvælu. "Það er hægt að fá frábæran mat í Englandi og það má ekki miða matreiðsluna þar við aldagamla þjóðarrétti sem kunna að bragðast einkennilega," segir hann. Hin finnska Katri Raakel Tauriainen, sem hefur getið sér gott orð í Innlit/útlit á Skjá einum, er sama sinnis og David og Úlfar og bendir á að sínu föðurlandi tíðkist meðal annars að baka brauð með fiski inní. "Það þýðir ekkert að dæma finnska matargerð út frá slíkum réttum," segir hún. "Í Finnlandi eru mjög margir æðislega góðir veitingastaðir og finnskir matreiðslumeistarar hafa náð góðum árangri á alþjóða vettvangi." Katri sárnaði ekki ummæli þjóðarleiðtoganna tveggja, hún hló frekar að vitleysunni í þeim.
Fréttir Innlent Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira