Hreindýraveiðar í tísku 15. febrúar 2005 00:01
Aldrei fyrr hafa fleiri viljað komast á hreindýraveiðar en nú og verða átta hundruð veiðimenn frá að hverfa. Fólk virðist ekki setja verðið fyrir sig enda hreindýraveiðar í tísku, segir sölumaður leyfanna, sem vill auka kvótann. Í dag rann út frestur til að sækja um leyfi til að veiða hreindýr síðsumars og er óhætt að tala um sprengingu í eftirspurn. Fyrir fimm árum voru veiðileyfin aðeins fjögur hundruð talsins og seldust þá ekki upp. Í ár eru tvær umsóknir um hvert leyfi þótt þeim hafi verið fjölgað í átta hundruð. Skýringin liggur ekki á lausu. Karen Erla Erlingsdóttir hjá Hreindýraráði Íslands segir að ein skýringin geti verið rjúpnabannið þar sem eftirspurn eftir hreindýraveiðleyfum hafi aukist mikið í kjölfar þess að umhverfisráðherra bannaði rjúpnaveiðar. Þá telur hún það sé í tísku að fara á veiðar. fólk setur ekki peningana fyrir sig, segir Karen. Verðið á leyfunum er allt að 110 þúsund krónur og annað eins getur kostað að ráða leiðsögumann og fá flutning á skepnunni. Allir sitja við sama borð því dregið verður úr leyfunum, sumir verða heppnir en aðrir ekki. Karen segir marga óánægða en Hreindýraráð geti ekkert gert, ekki sé úr fleiri leyfum að spila. Sú spurning hefur vaknað, í ljósi þessarar miklu eftirspurnar, hvort ekki eigi að selja leyfin hæstbjóðendum. Karen bendir á að hugsanlega sé um auðlind að ræða og auka megi kvótann. Þá megi einnig velta því fyrir sér hvort ekki eigi að fjölga dýrunum og lofa þeim að nema land norðar en þau eru nú.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira