Spilar indverska Bhangra tónlist 15. febrúar 2005 00:01
Hljómsveitin DCS, sem telur níu breska hljóðfæraleikara sem eiga allir indverska foreldra, heldur tónleika á skemmtistaðnum Nasa á föstudagskvöld í tilefni af Vetrarhátíð Reykjavíkur. DCS hefur unnið síðustu 20 ár við að gera sína eigin Bhangra tónlist, sem varð til sem hluti af uppskeruhátíðarhöldum í Punjab héraði á Indlandi fyrir nær 200 árum. Á níunda áratugnum fór hljómsveitin að blanda saman hefðbundnum indverskum ásláttar- og strengjahljóðfærum við nýtískulegri vestræn hljóðfæri eins og rafmagnsgítara og plötusnúðagræjur. Textarnir eru sungnir bæði á punjabi, hindí, og á ensku og fjalla langflestir um konur, dans og skemmtanir. Undanfarin hefur hljómsveitin haldið tónleika vítt og breitt um Evrópu sem hafa vakið mikla lukku. Hefur hún hlotið mörg tónlistarverðlaun og gefið út fjölmargar plötur, þar á meðal Old Skool / Noo skool= DCS flava sem nýverið kom út. Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Vetrarhátíðarinnar, sá hljómsveitina á árlegri heimstónlistarhátíð í Osló í fyrra og hreinlega varð að fá hana hingað til lands. "Þeir eru alveg rosalega flottir og mjög lifandi á sviði," segir Sif. "Þeir kenna manni spor og fljótt eru allir farnir að taka þátt í indverskum handahreyfingum. Ef Norðmenn verða dansfífl við þetta hljóta Íslendingar að verða það líka." Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og er aðgangur ókeypis. Dúettinn Súkkat hitar upp og gleðisveitin Bermúda mun síðan taka við af DCS og halda uppi fjörinu fram á rauða nótt.
Menning Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira